Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
   þri 09. desember 2025 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Meistaradeildin í dag - Ítölsku stórliðin mæta þeim ensku
Mynd: EPA
Chelsea án sigurs þrjá leiki í röð.
Chelsea án sigurs þrjá leiki í röð.
Mynd: EPA
Níu leikir fara fram í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu í dag og í kvöld og má finna mikið af spennandi viðureignum.

Grísku meistararnir í Olympiakos, sem skoruðu 3 mörk í tapi gegn Real Madrid í síðustu umferð, byrja daginn á ferðalagi til Kasakstan þar sem þeir heimsækja Kairat Almaty.

Í næsta leik þar á eftir eiga Þýskalandsmeistarar FC Bayern heimaleik við Portúgalsmeistara Sporting CP.

Barcelona tekur aftur á móti Eintracht Frankfurt eftir að liðin mættust í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar 2022. Þar hafði Frankfurt óvænt betur eftir frækinn sigur í Barcelona.

Ítölsku stórveldin fá þau ensku í heimsókn annað kvöld, þegar Inter og Atalanta eru á heimavelli gegn Liverpool og Chelsea. Spennandi slagir sem lofa mjög góðu.

Tottenham fær svo Slavia Prag í heimsókn frá Tékklandi og á PSV Eindhoven heimaleik gegn Atlético Madrid. Leikmenn PSV mæta í leikinn fullir sjálfstrausts eftir sigur á Anfield í síðustu umferð.

Mónakó spilar við Galatasaray í áhugaverðum slag á meðan Marseille heimsækir St. Gilloise til Belgíu.

Leikir dagsins
15:30 Kairat - Olympiakos
17:45 Bayern - Sporting
20:00 Barcelona - Eintracht Frankfurt
20:00 Inter - Liverpool
20:00 Atalanta - Chelsea
20:00 St. Gilloise - Marseille
20:00 Mónakó - Galatasaray
20:00 Tottenham - Slavia Prag
20:00 PSV - Atletico Madrid
Stöðutaflan Evrópa Meistaradeildin
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 8 8 0 0 23 4 +19 24
2 Bayern 8 7 0 1 22 8 +14 21
3 Liverpool 8 6 0 2 20 8 +12 18
4 Tottenham 8 5 2 1 17 7 +10 17
5 Barcelona 8 5 1 2 22 14 +8 16
6 Chelsea 8 5 1 2 17 10 +7 16
7 Sporting 8 5 1 2 17 11 +6 16
8 Man City 8 5 1 2 15 9 +6 16
9 Real Madrid 8 5 0 3 21 12 +9 15
10 Inter 8 5 0 3 15 7 +8 15
11 PSG 8 4 2 2 21 11 +10 14
12 Newcastle 8 4 2 2 17 7 +10 14
13 Juventus 8 3 4 1 14 10 +4 13
14 Atletico Madrid 8 4 1 3 17 15 +2 13
15 Atalanta 8 4 1 3 10 10 0 13
16 Leverkusen 8 3 3 2 13 14 -1 12
17 Dortmund 8 3 2 3 19 17 +2 11
18 Olympiakos 8 3 2 3 10 14 -4 11
19 Club Brugge 8 3 1 4 15 17 -2 10
20 Galatasaray 8 3 1 4 9 11 -2 10
21 Mónakó 8 2 4 2 8 14 -6 10
22 Qarabag 8 3 1 4 13 21 -8 10
23 Bodö/Glimt 8 2 3 3 14 15 -1 9
24 Benfica 8 3 0 5 10 12 -2 9
25 Marseille 8 3 0 5 11 14 -3 9
26 Pafos FC 8 2 3 3 8 11 -3 9
27 St. Gilloise 8 3 0 5 8 17 -9 9
28 PSV 8 2 2 4 16 16 0 8
29 Athletic 8 2 2 4 9 14 -5 8
30 Napoli 8 2 2 4 9 15 -6 8
31 FCK 8 2 2 4 12 21 -9 8
32 Ajax 8 2 0 6 8 21 -13 6
33 Frankfurt 8 1 1 6 10 21 -11 4
34 Slavia Prag 8 0 3 5 5 19 -14 3
35 Villarreal 8 0 1 7 5 18 -13 1
36 Kairat 8 0 1 7 7 22 -15 1
Athugasemdir
banner
banner