Arsenal vill unga spænska varnarmenn - Sancho orðaður við aðra endurkomu til Dortmund - Tottenham vill Trafford
   fös 10. apríl 2026 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Asencio fær ekki mínútur: Verðið að spyrja Arbeloa
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Varnarmaðurinn Raúl Asencio hefur ekki fengið að spila fyrir Real Madrid síðasta mánuðinn eftir ósætti við Árvalo Arbeloa þjálfara.

Asencio hefur tvisvar sinnum kvartað í fjölmiðlum undan því að fá ekki spiltíma og í bæði skiptin hefur hann bent á bráðabirgðaþjálfarann Arbeloa, sem er ekki sáttur.

Asencio kvartaði fyrst eftir stórt tap gegn Manchester City í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Hann var spurður hvers vegna hann hafi ekki komið við sögu í tapinu og sagði fréttamönnum að spyrja frekar Arbeloa.

Þjálfarinn tók illa í þetta og hélt Asencio á bekknum næstu leiki. Eftir tap gegn Mallorca um síðustu helgi var Asencio aftur spurður út í fjarveru sína úr byrjunarliðinu.

„Ef þið viljið vita hvers vegna ég spila ekki, þá verðið þið að spyrja Arbeloa. Hann tekur ákvarðanirnar," segir Asencio.

„Ég er í góðu formi, er búinn að leggja mikla vinnu á mig á æfingum og ég hef meira að segja spilað í gegnum meiðsli á bringu fyrir þetta félag. Restin er ekki undir mér komin."

Madrídingar héldu liðsfund eftir tapið í Mallorca og herma spænskir fjölmiðlar að Arbeloa hafi sýnt óánægju með hegðun Asencio.

„Hefur einhver annar eitthvað annað að segja? Útaf því að það eina sem skiptir máli hérna er liðsheildin. Enginn einstaklingur er hafinn yfir gildi Real Madrid og ef einhver er ekki tilbúinn til að setja liðsheildina í fyrsta sæti þá verður viðkomandi ekki partur af liðinu," á Arbeloa að hafa sagt á fundinum.

Asencio svaraði þessu ekki á fundinum og er óljóst hvort og hvenær hann fær að spila aftur undir stjórn Arbeloa.
Slapp
banner
banner
banner