Stjarna Aston Villa er gríðarlega eftirsótt og Juventus vill markvörð Liverpool. Þetta og fleira í slúðurpakka dagsins. Enska úrvalsdeildin fer aftur af stað í kvöld eftir þriggja vikna hlé!
Arsenal, Manchester United og Chelsea hafa endurnýjað áhuga sinn á Morgan Rogers (23), miðjumanni Aston Villa og enska landsliðsins. Líklegt er að Rogers verði eitt helsta umfjöllunarefni sumarsins og það gæti myndast verðstríð. (Times)
Juventus hefur von um að fá brasilíska markvörðinn Alisson Becker (33) frá Liverpool. Hann er sagður opinn fyrir því að fara í ítölsku A-deildina. (La Gazzetta dello Sport)
Fenway Sports Group, eigendur Liverpool, telja að Hollendingurinn Arne Slot (47) muni leiða liðið á næsta tímabili þrátt fyrir annað tap í þessari viku. (Telegraph)
Búist er við því að Aston Villa verði meðal félaga sem vonast til að fá enska markvörðinn James Trafford (23) frá Manchester City. (Football Insider)
Umboðsmaður Enzo Fernandez (25) hefur beðið Chelsea afsökunar á ummælum sínum um möguleika á því að argentínski landsliðamaðurinn fari til Real Madrid. (Sky Sports)
Real Madrid gæti lagt aukna áherslu á að kaupa Michael Olise (24) frá Bayern München. Liverpool hefur einnig áhuga á franska kantmanninum. (Christian Falk)
Liverpool og Manchester City hafa blandað sér í baráttu við Arsenal um kamerúnska framherjann Christian Kofane (19) hjá Bayer Leverkusen. (TeamTalk)
Nottingham Forest hefur ekki fengið nein formlega tilboð í enska miðjumanninn Elliot Anderson (23) en býst við tilboðum áður en HM fer í gang. Manchester City og Manchester United vilja fá hann. (TalkSport)
Franski varnarmaðurinn Castello Lukeba (23) mun yfirgefa RB Leipzig í sumar. Arsenal, Chelsea, Liverpool og Manchester United eru öll að horfa til hans. (Teamtalk)


