Hörð barátta um Rogers - Juventus vill Alisonn - Olise orðaður við Real
   fös 10. apríl 2026 14:00
Kári Snorrason
Íslenskir stuðningsmenn á einu máli um framtíð Slot - „Luis Enrique er blautur draumur“
Arne Slot.
Arne Slot.
Mynd: EPA
Luis Enrique er ofarlega á óskalista stuðningsmanna.
Luis Enrique er ofarlega á óskalista stuðningsmanna.
Mynd: EPA
Snýr Xabi Alonso aftur á Anfield?
Snýr Xabi Alonso aftur á Anfield?
Mynd: EPA
Vígalegur Magnús Þór Jónsson.
Vígalegur Magnús Þór Jónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magnús Haukur telur að liðið muni ekki ná Meistaradeildarsæti.
Magnús Haukur telur að liðið muni ekki ná Meistaradeildarsæti.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Laufdal með myndavélina á lofti.
Arnar Laufdal með myndavélina á lofti.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Baldvin Már Borgarsson í stuði.
Baldvin Már Borgarsson í stuði.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Liverpool hefur átt slæmu gengi að fagna undanfarin misseri og er farið að hitna undir Hollendingnum Arne Slot.

Liðið er í erfiðri stöðu í Meistaradeildinni og er Liverpool tveimur mörkum undir í einvíginu gegn PSG eftir fyrri leikinn. Þá er liðið í harðri baráttu um að ná Meistaradeildarsæti í deildinni gegn Chelsea, Aston Villa og Brentford.

Undirritaður heyrði í fjórum íslenskum stuðningsmönnum Liverpool og lögðum fyrir þá eftirfarandi fjórar spurningar.

A) Á að reka Slot?

B) Hvað hefur orsakað slaka gengið?

C) Hver á að taka við Slot?

D) Nær Liverpool Meistaradeildarsæti?

Magnús Þór Jónsson
A) Já. Hefði átt að gerast um áramót þegar ljóst varð að viðspyrna liðsins við vondu gengi var engin. En klárlega núna.

B) Erfitt að átta sig á hvar málið byrjar og hvar það endar - því hann er fyrsti "head coach" í sögu Liverpool FC sem einhvern veginn átti að benda á það að t.d. leikmannakaup og ákvarðanir séu ekki endilega hjá honum. Ljóst mál að framherjabreytingarnar í sumar klikkuðu og það að hafa ekki bætt við hafsent og mögulega djúpum miðjumanni hefur komið í bakið á liðinu.

Hins vegar hefur sýnilega orðið breyting á leikskipulagi í þá átt að lækka tempó, minnka pressu og leggja miklu meiri áherslu á posession en sóknarleik. Auk þess sem líkamsþrek og styrkur liðsins er á allt öðrum stað en áður. Þetta er afrakstur vinnunar á æfingasvæðinu og hefur verið sýnilegt í raun frá lokum tímabilsins 2024 - 2025 og öskrar á mann núna.

Hann virðist líka ekki ná að bregðast við stöðu sem kemur upp inni á vellinum meðan á leik stendur og milli leikja eru stöðugt að koma upp sömu vandamálin. Það er þjálfarans að leiðrétta, á einhverjum tíma getur það verið tímabundið ástand en nú erum við að tala um heilt leiktímabil í raun. Svo held ég að hann eigi erfitt með að díla við leikmenn með stór egó sem gengur ekki ef þú ætlar að stýra liði sem ætlar að vera í topp tíu í heiminum.

C) Ég horfi á þrjá kosti.

Draumurinn: Luis Enrique. Ákafi og leikstíll í þeim anda sem fótboltinn á að vera í mínum huga og algerlega í takt við Liverpool liðin sem hafa verið best á mínum stuðningstíma, áhersla á sóknarleik og að skemmta. Sé þó því miður alls ekki hvers vegna hann ætti að kveðja PSG og fara á Anfield, Vonandi sýnir Kop-stúkan honum hvað það er æðislegt að vera heimamaður núna á afmælisdaginn minn, 14.apríl.

Rökrétt: Xabi Alonso. Goðsögn á sínum tíma hjá Liverpool og hefur náð árangri í toppdeild, veit hvernig við getum virkjað okkar besta mann, Wirtz, og þekkir þessa deild út og inn. Hef pínu áhyggjur af leikstílnum sem hann var að setja upp hjá Real og vísbendingum um að hann hafi lent í smá vanda með ego-in þar...en Real er náttúrulega Dramaland dauðans, ólíkt Liverpool FC.

Óvænt: Unai Emery. Gaur sem hefur í raun náð frábærari árangri en flestir með lið rétt utan við þau bestu í heimi, bæði í sterkum deildum og í Evrópu. Var óheppinn held ég að koma inn hjá Arsenal strax í kjölfar Wenger með lið sem þurfti mikið og áhangendur með enga þolinmæði. Þekkir ensku deildina orðið mjög vel sem stjóri, það er kostur.

D) Já. Skríðum inn í 5.sætið eftir barning.

Magnús Haukur Harðarsson
A) Það átti að reka hann í nóvember

B) Of miklar breytingar voru gerðar á hópnum eftir tímabilið í fyrra ( það er ekki honum að kenna ). Það sem hann þarf að taka á sig er upplegg liðsins sem er einu orði sagt ömurlegt og leikurinn gegn PSG í vikunni sýndi þeim sem voru enn að verja hann að hann er ekki rétti maðurinn til að taka þetta lið áfram.

C) Ég er spenntastur fyrir Luis Enrique en ætli Xabi Alonso sé ekki svarið.

D) Nei.

Arnar Laufdal Arnarsson
A) Því miður er Slot kominn á endastöð með þetta lið, manni mun alltaf þykja vænt um hann fyrir það sem hann gerði 24/25 tímabilið sem var alveg ótrúlegt en ég bara se hann því miður ekki snúa þessu við þó ég hef alveg trú á honum sem þjálfara en ég held bara að hann er búinn að mála sig út í horn og nær ekki að snúa þessu við.

B) Hann hefur ekki náð að viðhalda því það sem Liverpool hefur staðið fyrir núna í rúman áratug og það er þetta gífurlega orkumikla lið sem hefur alltaf verið gaman að horfa á. Þetta er orðið alltof hægt, passívt og bara ekki ánægjulegt að horfa á, sérstaklega upp á síðkastið. Slot vill að sjálfsögðu halda í boltann og ég vill það líka en guð minn góður hvað þetta getur verið leiðinlegt að horfa á.

C) Í einhverjum algjörum draumaheimi er Luis Enrique augljósi kosturinn og ég held það væri fullkomið fit fyrir báða aðila. Vonandi er Luis Enrique sáttur með það sem hann hefur gert hjá PSG og vill nýja áskorun.

Liverpool er sögufrægur klúbbur og sigursælasti klúbbur Englands og held hann gæti búið til svipaða stemningu og kom með Klopp nema á sinn hátt, með frábæran leikstíl sem ég tel að henti núverandi hóp Liverpool mjög vel.

Annars bara fá Alonso inn, þekkir auðvitað klúbbinn og væri sömuleiðis gott fit, nema bara hann má ekki vera í þessu 5 manna wing-back kerfi sínu.

D) Já Liverpool nær Meistaradeildarsæti, einfalt mál.

Baldvin Már Borgarsson
A) Já, fyrir löngu eiginlega.

B) Hundleiðinlegt og hægt leikskipulag liðsins sem er orðið þungt og erfitt að horfa á.

C) Xabi Alonso er svona raunhæfi kosturinn, Luis Enrique er blautur draumur, ef það þarf að brúa bilið fram á sumarið má Steven Gerrard bara mæta með smá hjarta til þess að klára tímabilið.

D) Það ætla ég rétt að vona, annars er Slot algjört failure, liðið er ekki eins lélegt og það lítur út fyrir að vera.
Slapp
banner
banner