Heimild: Vísir
Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Íslandsmeistara Víkings, staðfestir í samtali við Vísi að Gylfi Þór Sigurðsson sé klár í slaginn fyrir stórleikinn gegn Breiðabliki í kvöld.
Hjörvar Hafliðason fullyrti í Dr. Football í gær að Gylfi yrði ekki leikfær en annað hefur komið á daginn.
„Við vorum að hafa áhyggjur af því hvort þetta væri tognun hjá honum en svo er ekki. Hann er klár í að taka þátt í leiknum í dag," sagði Sölvi við Vísi.
Það er ekkert því til fyrirstöðu að hann byrji leikinn í kvöld?
„Nei,“ var stutt og hnitmiðað svar Sölva við spurningu Arons Guðmundssonar íþróttafréttamanns.

Gylfi fór meiddur af velli í sigrinum gegn Fram á dögunum í Mjólkurbikarnum og var óttast um að hann yrði ekki til taks fyrir Víkinga í stórleik kvöldsins.
Fyrsta umferð Bestu deildarinnar:
föstudagur 10. apríl
19:15 Víkingur R.-Breiðablik (Víkingsvöllur)
sunnudagur 12. apríl
13:00 ÍBV-FH (Hásteinsvöllur)
17:00 KR-Keflavík (Meistaravellir)
17:00 Valur-Þór (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:00 KA-Stjarnan (Greifavöllurinn)
19:30 Fram-ÍA (Lambhagavöllurinn)