Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
   sun 10. maí 2026 20:57
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Meistaradeildarsætið í hættu eftir annað tap
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Milan 2 - 3 Atalanta
0-1 Ederson ('7 )
0-2 Davide Zappacosta ('29 )
0-3 Giacomo Raspadori ('52 )
1-3 Strahinja Pavlovic ('88 )
2-3 Christopher Nkunku ('94, víti)

AC Milan tók á móti Atalanta í nágrannaslag í kvöldleiknum í ítalska boltanum og úr varð mikil skemmtun. Gestirnir náðu forystunni strax á sjöundu mínútu þegar boltinn barst til Éderson eftir atgang í vítateignum og kláraði hann með hnitmiðuðu skoti.

Davide Zappacosta tvöfaldaði forystuna þegar hann komst innfyrir vörnina og gerði Nikola Krstovic mjög vel að koma boltanum á Zappacosta sem skoraði af stuttu færi.

Milan átti engin svör og setti Giacomo Raspadori þriðja markið með frábæru skoti í upphafi síðari hálfleiks.

Heimamenn voru þó ekki búnir að gefast upp og blésu til sóknar. Þeim tókst þó ekki að minnka muninn fyrr en alltof seint, þegar Strahinja Pavlovic skallaði aukaspyrnu frá Samuele Ricci í netið.

Dómarinn bætti sex mínútum við og fiskaði varamaðurinn Christopher Nkunku vítaspyrnu í uppbótartímanum. Hann steig sjálfur á punktinn og skoraði örugglega.

Milan fékk færi til að gera ótrúlegt jöfnunarmark eftir aukaspyrnu á 97. mínútu en Lorenzo Colombo átti lélegan skalla að marki úr mjög góðu færi og svo vildu heimamenn fá dæmda vítaspyrnu fyrir hendi en fengu ekki, svo lokatölur urðu 2-3.

Þetta er annað tapið í röð hjá Milan svo stórveldið er í bráðri hættu á að missa óvænt af meistaradeildarsæti. Liðið er aðeins búið að ná í fjögur stig af síðustu fimmtán mögulegum í Serie A.

Það eru aðeins tvær umferðir eftir og er Milan í harðri baráttu um síðasta meistaradeildarsætið. Lærlingar Max Allegri eru jafnir Roma á stigum en sitja sæti fyrir ofan þökk sé sigri í innbyrðisviðureign.

Atalanta er á sama tíma búið að tryggja sér sjöunda sæti deildarinnar sem gæti gefið liðinu þátttökurétt í Sambandsdeildina í haust, ef Inter vinnur ítalska bikarinn á miðvikudagskvöldið.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 38 27 6 5 89 35 +54 87
2 Napoli 38 23 7 8 58 36 +22 76
3 Roma 38 23 4 11 59 31 +28 73
4 Como 38 20 11 7 65 29 +36 71
5 Milan 38 20 10 8 53 35 +18 70
6 Juventus 38 19 12 7 61 34 +27 69
7 Atalanta 38 15 14 9 51 36 +15 59
8 Bologna 38 16 8 14 49 46 +3 56
9 Lazio 38 14 12 12 41 40 +1 54
10 Udinese 38 14 8 16 45 48 -3 50
11 Sassuolo 38 14 7 17 46 50 -4 49
12 Parma 38 11 12 15 28 46 -18 45
13 Torino 38 12 9 17 44 63 -19 45
14 Cagliari 38 11 10 17 40 53 -13 43
15 Fiorentina 38 9 15 14 41 50 -9 42
16 Genoa 38 10 11 17 41 51 -10 41
17 Lecce 38 10 8 20 28 50 -22 38
18 Cremonese 38 8 10 20 32 57 -25 34
19 Verona 38 3 12 23 25 61 -36 21
20 Pisa 38 2 12 24 26 71 -45 18
Slapp
banner
banner
banner