Sif Atladóttir, leikmaður íslenska kvennalandsliðið, var í góðum gír í viðtalið við Fótbolta.net í dag, en hún er bjartsýn fyrir leikinn á morgun og segir afar mikilvægt að ná stig úr honum.
,,Mikill spenningur, fyrsti leikur á morgun og allir mjög spenntir fyrir honum bara," sagði Sif Atladóttir.
,,Þetta er fyrsti leikur og fyrsti leikur er opnun á mótinu, en við förum inn með alla vega eitt stig, ætlum að halda því og vonandi pota inn einu til að taka þrjú. Það verður að vera einhver ákveðin stefna í þessu, en ég sé ekki af hverju við ættum ekki að geta tekið Þýskaland líka."
,,Þær eru með nýtt lið og svolítið eins og Norðmennirnir. Kynslóðaskipti og svona, en fyrsti leikur á morgun og við þurfum að byrja á þremur stigum og þá er svona allt opið fyrir okkur."
Sif hefur verið að glíma við meiðsli að undanförnu, en hún segist klár í leikinn gegn Norðmönnum.
,,Ég er klár, ef kallið kemur er ég tilbúin fyrir morgundeginum. Smá eymsli, en ég er klár að byrja,"
Landsliðið kíkti á Öland í smá skoðunarferð, en þar skelltu nokkrir leikmenn sér út í sjó fyrir smá pening.
,,Við vorum að koma frá Ölandi, vorum að keyra þar í hálftíma, löbbuðum í korter og keyrðum svo til baka. Við fórum og röltum og fylgdumst með tveimur leikmönnum hoppa út í sjó, svo var rölt í miðbænum og svo komum við tilbaka."
,,Katrín Ómars lofaði Margréti 7000 krónum ef hún myndi hoppa út í sjó og svo kom ákvað Guðný bara að vera góður félagi og hoppa með. Þú getur manað Margréti út í hvað sem er, ef það er einhver áskorun þá er það Margrét sem tekur hana."
,,Æfingin í gær var mjög skemmtileg, mikið spil og skemmtilegheit. Það er svo bara búið að vera sjúkraþjálfun, hanga inni á herbergjum og borða, það er það eina sem maður gerir í þessum ferðum."
,,Katrín kútur er búin að vera þvílík dúlla og ég var næstum því búin að henda kút til Margrétar, hún var næstum því búin að drukkna. Þó svo hún komi frá Vestmannaeyjum þá er hún pínu ósynd," sagði Sif ennfremur.
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan.






















