„Þetta er gríðarlega svekkjandi. Við vildum meira og við áttum meira skilið, allavega úr Noregsleiknum og þessum leik hérna," sagði Hlynur Freyr Karlsson, fyrirliði U19 landsliðsins, í samtali við Fótbolta.net í kvöld.
Strákarnir í U19 landsliðinu eru úr leik á EM eftir markalaust jafntefli gegn Grikkjum í síðasta leik í riðlinum. Strákarnir enduðu með tvö stig úr þremur leikjum.
Strákarnir í U19 landsliðinu eru úr leik á EM eftir markalaust jafntefli gegn Grikkjum í síðasta leik í riðlinum. Strákarnir enduðu með tvö stig úr þremur leikjum.
Lestu um leikinn: Ísland U19 0 - 0 Grikkland U19
Íslendingar skoruðu tvö mörk í leiknum, en þau voru bæði dæmd af. Í fyrra atvikinu átti Hlynur Freyr sendingu á Eggert Aron Guðmundsson sem skoraði með skalla. Dómarateymið mat það þannig að boltinn hefði verið farinn út af.
„Að mínu mati eiga þetta að vera mörk. Ég held að boltinn hafi ekki verið farinn út af, ég held ekki."
„En við áttum bara að gera betur, við áttum bara að vinna Noreg. Þetta var í okkar höndum," segir Hlynur sem er núna að fara að stíga upp í U21 landsliðið.
„Þetta er stórmót og það er mjög góð reynsla fyrir okkur alla að komast á stórmót. Við erum hungraðir í meira," sagði þessi öflugi leikmaður og leiðtogi að lokum.
Athugasemdir






















