Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
   mið 10. desember 2025 22:34
Ívan Guðjón Baldursson
Championship: Átta umspilsbaráttulið mættu til leiks
Mynd: EPA
Mynd: Ipswich Town
Það fóru fjórir leikir fram í ensku Championship deildinni í kvöld þar sem um spennandi slagi var að ræða.

Öll átta liðin sem mættu til leiks eru í umspilsbaráttu sem stendur og því var mikið undir. Pakkinn um miðja Championship deild er gífurlega þéttur þar sem aðeins eru fjögur stig sem skilja á milli Hull City í 6. sæti og Derby County í 15. sæti sem stendur.

Hull lagði Wrexham að velli með tveimur mörkum gegn engu þar sem Kieffer Moore klúðraði vítaspyrnu fyrir gestina frá Wales.

Leicester City komst í tveggja marka forystu á útivelli gegn Bristol City, en heimamönnum tókst að jafna í síðari hálfleik. Tvö stig skilja þessi lið að í baráttunni um umspilssæti.

Ipswich Town hoppar upp í fjórða sæti deildarinnar þökk sé marki snemma leiks frá Jaden Philogene. Ipswich vann góðan 1-0 sigur á Stoke City þar sem heimamönnum tókst ekki að tvöfalda forystuna þrátt fyrir að vera sterkari aðilinn.

Ipswich er með 34 stig, einu stigi á eftir Millwall sem er að eiga frábært tímabil. Millwall gerði þó jafntefli við Derby County í dag þar sem staðan var markalaus allt þar til á lokakaflanum.

Tvö sjálfsmörk litu dagsins ljós, fyrst setti leikmaður Derby boltann í eigið net til að gefa Millwall forystuna áður en leikmaður Millwall endurlaunaði greiðann. Lokatölur urðu því 1-1 eftir tvö sjálfsmörk í jöfnum slag.

Hull City 2 - 0 Wrexham
1-0 Kyle Joseph ('10 )
1-0 Kieffer Moore ('56 , Misnotað víti)
2-0 Oli McBurnie ('67 )

Bristol City 2 - 2 Leicester City
0-1 Jordan Ayew ('17 , víti)
0-2 Bobby De Cordova-Reid ('45 )
1-2 Mark Sykes ('46 )
2-2 Emil Riis ('83 )

Ipswich Town 1 - 0 Stoke City
1-0 Jaden Philogene ('2 )

Derby County 1 - 1 Millwall
0-1 Matt Clarke ('81 , sjálfsmark)
1-1 Jake Cooper ('88 , sjálfsmark)
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 35 21 8 6 72 38 +34 71
2 Middlesbrough 35 19 9 7 54 35 +19 66
3 Millwall 35 18 8 9 47 40 +7 62
4 Ipswich Town 33 17 9 7 59 34 +25 60
5 Hull City 34 18 6 10 56 48 +8 60
6 Wrexham 35 15 12 8 54 45 +9 57
7 Southampton 35 14 11 10 57 46 +11 53
8 Derby County 35 14 9 12 52 46 +6 51
9 Watford 35 13 12 10 45 41 +4 51
10 Bristol City 35 14 8 13 48 44 +4 50
11 Preston NE 35 12 13 10 41 40 +1 49
12 Birmingham 35 13 10 12 46 46 0 49
13 Sheffield Utd 35 15 3 17 50 48 +2 48
14 Stoke City 35 13 8 14 39 34 +5 47
15 QPR 35 13 8 14 46 54 -8 47
16 Swansea 35 13 7 15 40 43 -3 46
17 Norwich 35 13 6 16 47 44 +3 45
18 Charlton Athletic 35 10 11 14 33 44 -11 41
19 Portsmouth 34 10 9 15 34 44 -10 39
20 Blackburn 35 10 8 17 33 46 -13 38
21 West Brom 35 9 8 18 34 52 -18 35
22 Leicester 35 10 10 15 47 56 -9 34
23 Oxford United 35 7 11 17 31 47 -16 32
24 Sheff Wed 35 1 8 26 21 71 -50 -7
Athugasemdir
banner
banner