Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
Siggi Höskulds: Leikmenn Stjörnunnar vilja greinilega hafa Jökul í starfi
Halli: Þurfum að hugsa okkar gang
Gunnar Heiðar: Ég vissi ekki að við ætluðum allt í einu að setja inn gjafaleik FM
Jökull vísaði í leikplan Arsenal þegar hann hrósaði Þór
Brynjar Björn um rauða spjaldið: Þetta er nú eina trixið sem ég kann
Lagði upp fjögur mörk í Eyjum - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Luke Rae: Mér fannst aldrei líklegt að þeir myndu koma til baka
Skoraði draumamark en þarf að hætta tuða - „Kontra hann svo í Samúel”
Hilmar Árni: Það þarf oft lítið til að meiða okkur
Linta: Ég vil óska strákunum til hamingju
„Mér fannst þeir orðnir hræddir"
Jóhann: Grafalvarlegt fyrir okkur
Badu: Hef aldrei efast um karakterinn
Óskar Smári eftir sigurinn: „Ætli ég fari ekki bara til Tenerife í tvær vikur“
Jón Óli: Bjartsýnn á Allison og feginn með frábæra byrjun
   mán 11. maí 2026 22:32
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Anton Ingi pirraður: Við verðum að hafa kassann út í 90 mínútur
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Gjörsamlega ömurlegar í fyrri hálfleik, bara mættum ekki til leiks. Stálheppnar að vera á núllinu og seinni hálfleik þá fannst mér við stíga vel upp og þá kom kraftur í okkur. Fengum á okkur eitt aula mark og náðum ekki að pota inn, en seinni hálfleikurinn töluvert sterkari heldur en í fyrri hálfleik" sagði Anton Ingi Rúnarsson, þjálfari Fram eftir 0-1 tap á heimavelli gegn Víkingi í Bestu Deildinni.


Lestu um leikinn: Fram 0 -  1 Víkingur R.

Hvað er það góða sem þið gerið í seinni hálfleik sem þið gerið ekki í fyrri?

„Aðallega, númer eitt er það krafturinn. Vorum alveg gjörsamlega kraftlausar og langt á eftir þeim í einu og öllu í fyrri hálfleik. Í seinni hálfleik þá förum við að mæta þeim á smá krafti og aðeins ofar á vellinum. Sýnum kjark og við þorðum ekki að spila í fyrri hálfleiknum og það var bara allt steindautt."

Vantaði eitthvað upp á í dag?

„Já, síðasta höggið að koma boltanum inn. Komum nokkrum fyrirgjöfum fyrir og áttum þarna nokkur fín tækifæri en hún varði þarna nokkrum sinnum nokkuð vel. Það vantaði þetta loka högg og kannski meiri nákvæmni í fyrirgjafirnar. Að gefa ekki fyrir bara til þess að gefa fyrir, gefa fyrir til þess að koma öðrum í marktækifæri."

Var seinni hálfleikurinn uppdrátturinn hvernig þið viljið spila í sumar?

„Já já, það er bara það. Við töluðum um það að halda bolta og vera á boltanum, með vindi í fyrri hálfleik, þú veist við nýttum það ekki neitt. Við í rauninni þorðum ekki að halda og héldum bolta á móti þrótturum. Höldum boltanum í seinni hálfleik og þá gefum við liðunum leiki. Við getum ekki verið litlar í okkur og mæta og halda að liðin séu að fara rúlla yfir okkur, bara langt í frá. Við verðum að hafa kassann út í 90 mínútur til þess að geta unnið þessa leiki."

Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan


Slapp
banner
banner