Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
Siggi Höskulds: Leikmenn Stjörnunnar vilja greinilega hafa Jökul í starfi
Halli: Þurfum að hugsa okkar gang
Gunnar Heiðar: Ég vissi ekki að við ætluðum allt í einu að setja inn gjafaleik FM
Jökull vísaði í leikplan Arsenal þegar hann hrósaði Þór
Brynjar Björn um rauða spjaldið: Þetta er nú eina trixið sem ég kann
Lagði upp fjögur mörk í Eyjum - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Luke Rae: Mér fannst aldrei líklegt að þeir myndu koma til baka
Skoraði draumamark en þarf að hætta tuða - „Kontra hann svo í Samúel”
Hilmar Árni: Það þarf oft lítið til að meiða okkur
Linta: Ég vil óska strákunum til hamingju
„Mér fannst þeir orðnir hræddir"
Jóhann: Grafalvarlegt fyrir okkur
Badu: Hef aldrei efast um karakterinn
Óskar Smári eftir sigurinn: „Ætli ég fari ekki bara til Tenerife í tvær vikur“
Jón Óli: Bjartsýnn á Allison og feginn með frábæra byrjun
   mán 11. maí 2026 22:48
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Einar Guðna: Vindurinn tók boltann bara til baka
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér líður mjög vel að vera þrem stigum ríkari og það er það sem skiptir máli úr þessum leik" sagði Einar Guðnason, þjálfari Víkings eftir 0-1 sigur á úti velli gegn Fram.


Lestu um leikinn: Fram 0 -  1 Víkingur R.

Ertu ánægður með frammistöðuna í dag?

„Já, mér fannst við töluvert betri í fyrri hálfleik, í þessum strekkings vindi. Fengum þarna tvö ágætis færi til þess að skora, þetta var erfitt. Komumst í góðar fyrirgjafar stöður oft og svo nálægt teignum þar sem vindurinn tók boltann bara til baka. Við vorum ekki að ná að skapa eins mörg færi og sem krafturinn og viljinn í fyrri hálfleik gaf til kynna og það sem við hefðum átt skilið. Seinni hálfleik, fannst mér við eiga skilið að komast yfir. En svona eftir það er eins og við missum tökin á leiknum og erum að bíða eftir því að vera búin í staðinn að fara að bæta við."

Ertu ánægður með vörnina, að ná hreinu laki?

„Já, algjörlega vörnin stóð þetta vel. Ég man ekki í fljótu bragði eftir leik eftir eitthverjum mistökum í vörninni, þær voru bara fínar og allt liðið varnarlega. Svona framarlega á vellinum í fyrri hálfleik og aftarlega í seinni hálfleik."

Er ekki gott að klára leik þar sem þú manst ekki eftir augljósum mistökum, sérstaklega eftir síðust þrjá?

„Það er frábær punktur, þær voru að gera svolítið af mistökum í síðustu leikjum sem kostaði okkur. En í dag þá kostaði okkur ekki neitt allaveganna, við gerðum engin alvarleg mistök og komumst í gegnum þetta, það hefur þýðingu fyrir okkur."

Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan


Slapp
banner
banner