Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
Siggi Höskulds: Leikmenn Stjörnunnar vilja greinilega hafa Jökul í starfi
Halli: Þurfum að hugsa okkar gang
Gunnar Heiðar: Ég vissi ekki að við ætluðum allt í einu að setja inn gjafaleik FM
Jökull vísaði í leikplan Arsenal þegar hann hrósaði Þór
Brynjar Björn um rauða spjaldið: Þetta er nú eina trixið sem ég kann
Lagði upp fjögur mörk í Eyjum - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Luke Rae: Mér fannst aldrei líklegt að þeir myndu koma til baka
Skoraði draumamark en þarf að hætta tuða - „Kontra hann svo í Samúel”
Hilmar Árni: Það þarf oft lítið til að meiða okkur
Linta: Ég vil óska strákunum til hamingju
„Mér fannst þeir orðnir hræddir"
Jóhann: Grafalvarlegt fyrir okkur
Badu: Hef aldrei efast um karakterinn
Óskar Smári eftir sigurinn: „Ætli ég fari ekki bara til Tenerife í tvær vikur“
Jón Óli: Bjartsýnn á Allison og feginn með frábæra byrjun
   mán 11. maí 2026 21:44
Alexander Tonini
Matti Guðmunds svekktur: Lögðum líf og sál í þetta en fótboltinn er brútal
Kvenaboltinn
Matthías Guðmundsson þjálfari Vals var svekktur með úrslitin
Matthías Guðmundsson þjálfari Vals var svekktur með úrslitin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heppnin var svo sannarlega ekki með Valskonum í Kópavogi í kvöld þegar ríkjandi Íslandsmeistarar skoruðu tvö mörk í uppbótartíma og sendi Val með skottið á milli lappanna aftur til Reykjavíkur með 2-3 tap.

„Við lögðum líf og sál í þetta en fótboltinn er brútal. Það vita allir sem hafa verið lengi í honum", sagði Matthías Guðmundsson þjálfari Vals eftir leik.

Lestu um leikinn: Breiðablik 3 -  2 Valur

Valur spilaði manni færri frá 18. mínútu leiks þegar Hrafnhildur Salka Pálmadóttir fékk að líta rauða spjaldið fyrir hártog. Sá Matthías atvikið?

„Mér skilst að hún (Hrafnhildur Salka) hafi tosað í hárið á henni (Barabára Sól) en hún ætlaði sér ekki að gera það."

En var þetta besta frammistaða Vals það sem af er móti þrátt fyrir úrslit?

„Mér finnst þetta bara í tröppugangnum. Byrjuðum mótið á erfiðum leik þar sem taugarnar voru þandar en lifðum af og fengum sigur. Spiluðum slæman fyrri hálfleik á móti Stjörnunni en góðan seinni hálfleik. Mér fannst við spila góðan leik á móti ÍBV og svo er þetta bara næsta trappa".

Er Matti búinn að sjá sigumarkið hjá Blikum?

„Ekki í sjónvarpinu en jú ég sá það. Það var bara sárt mark og þær (Breiðablik) fengu trúna á þessum þremur fjórum mínútum. Enn og aftur stoltur af mínum konum".
Slapp
banner
banner