Heimild: 433
Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála hjá FH, ræddi við 433 í gærkvöldi, eftir að hafa gefið leik sinn gegn Fylki í Lengjubikarnum.
27.02.2026 20:47
Lengjubikarinn: Kaldir FH-ingar gáfu leikinn
Fylkir leiddi 1-0 eftir kaldan fyrri hálfleik. Hafnfirðingar ákváðu að snúa ekki aftur til vallar þrátt fyrir snjómokstur og batnandi veðuraðstæður í hálfleik.
Davíð Þór segir að forráðamenn FH hafi talið heilsu leikmanna vera ógnað í leik liðanna og þess vegna hafi liðið neitað að spila seinni hálfleikinn í Árbæ.
FH óskaði eftir því að leikurinn yrði flautaður af vegna aðstæðna en Helgi Mikael Jónasson dómari neitaði að verða við því.
Davíð segir atvik í fyrri hálfleik hafa verið á þann veg að leikmenn hafi verið í hættu. FH-ingar vilja ekki ógna heilsu leikmanna þar sem rúmur mánuður er í upphafsflautið í Bestu deildinni, það sé ekki áhættunnar virði að spila við slíkar aðstæður skömmu fyrir Íslandsmót.
FH er tilbúið að borga sektina sem félagið hlýtur vegna málsins og fær Fylkir skráðan 3-0 sigur.
Samkvæmt drögum á vefsíðu KSÍ spilar FH fyrstu umferð nýs tímabils gegn ÍBV í Vestmannaeyjum 12. apríl.
Athugasemdir




