Fylkir og FH áttust við í A-deild Lengjubikars karla í kvöld og var staðan 1-0 fyrir Fylki eftir kaldan fyrri hálfleik við slæmar veðuraðstæður.
Veðrið skánaði umtalsvert í leikhlénu og var snjónum mokað af vellinum en FH-ingar neituðu að mæta aftur út á grasið og gáfu leikinn. Fylkir fær því skráðan 3-0 sigur.
Leikurinn var í beinni útsendingu á Livey og furðuðu lýsendur sig á ákvörðun FH-inga.
FH er núna með fjögur stig eftir fjórar umferðir á meðan Fylkir á fullt hús stiga og markatöluna 9-0 eftir þrjá leiki.
Ótrúlegar senur á Tekk vellinum í Árbæ. Fylkir voru 1-0 yfir í hálfleik en FH mætir ekki út í seinni hálfleik og Helgi Mikael flautar leikinn af! Leik lokið og eins og @Maggihodd sagði ... Góða nótt! pic.twitter.com/CeENp4fa7K
— Livey (@liveyevents) February 27, 2026
FH gaf leik gegn Fylki í hálfleik.
— Kristján Óli Sigurðsson (@kristjanoli) February 27, 2026
Svona leit völlurinn út þegar leikurinn átti að hefjast. pic.twitter.com/z3UnnFhMuR
Athugasemdir




