Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
Siggi Höskulds: Leikmenn Stjörnunnar vilja greinilega hafa Jökul í starfi
Halli: Þurfum að hugsa okkar gang
Gunnar Heiðar: Ég vissi ekki að við ætluðum allt í einu að setja inn gjafaleik FM
Jökull vísaði í leikplan Arsenal þegar hann hrósaði Þór
Brynjar Björn um rauða spjaldið: Þetta er nú eina trixið sem ég kann
Lagði upp fjögur mörk í Eyjum - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Luke Rae: Mér fannst aldrei líklegt að þeir myndu koma til baka
Skoraði draumamark en þarf að hætta tuða - „Kontra hann svo í Samúel”
Hilmar Árni: Það þarf oft lítið til að meiða okkur
Linta: Ég vil óska strákunum til hamingju
„Mér fannst þeir orðnir hræddir"
Jóhann: Grafalvarlegt fyrir okkur
Badu: Hef aldrei efast um karakterinn
Óskar Smári eftir sigurinn: „Ætli ég fari ekki bara til Tenerife í tvær vikur“
Jón Óli: Bjartsýnn á Allison og feginn með frábæra byrjun
   þri 12. maí 2026 00:10
Snæbjört Pálsdóttir
Jói hrósaði nýliðunum: Þær tóku fyrri hálfleikinn bara í nefið
Kvenaboltinn
Jóhann Kristinn hrósaði nýliðum Grindavíkur/Njarðvíkur eftir leikinn í Laugardalnum.
Jóhann Kristinn hrósaði nýliðum Grindavíkur/Njarðvíkur eftir leikinn í Laugardalnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þróttar, var eðlilega svekktur eftir 1-2 tap liðsins gegn nýliðum Grindavíkur/Njarðvíkur í 4. umferð í Bestu deild kvenna í Laugardalnum í kvöld. Hann sagði gestina hafa verið sterkari aðilann, sérstaklega í fyrri hálfleik.

„Það eru náttúrulega hroðaleg vonbrigði og sársvekktur að hafa tapað á heimavelli. Það er eitthvað sem við ætluðum ekki að gera. Þannig það eru fyrstu viðbrögð,“ sagði Jóhann eftir leik.


Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 -  2 Grindavík/Njarðvík

„Þær voru bara miklu ákveðnari og tóku fyrri hálfleikinn bara í nefið. Við bara einhverra hluta vegna náðum ekki að matcha það. Þannig að þeirra orka í fyrri hálfleik skóp þennan sigur.“

Jóhann hrósaði nýliðunum fyrir frammistöðuna en vildi ekki gera lítið úr eigin leikmönnum þrátt fyrir svekkelsið.

„Svo er þetta bara vel spilandi lið, þær voru bara flottar, það er ekki hægt að taka neitt af þeim.“

„Ég ætla ekki að fara tala liðið mitt niður. Ég ætla bara að hrósa Grindavík fyrir frábæra frammistöðu og verðskuldaðan sigur í kvöld.“

Þróttur á inni tvo leikmenn þær Freyju Karín og Björgu vegna meiðsla en Jóhann segir óljóst hvenær þær snúa aftur.

„Við bara vitum það ekki, það bara kemur í ljós en við erum alveg með nógu góða leikmenn í það að vinna hvað sem er. Ég er mjög ánægður með hópinn og mér finnst ekkert vanta. Við eigum bara að gera betur.“

Næsta verkefni Þróttar er stórleikur gegn Breiðabliki í Mjólkurbikarnum á laugardag og sagði Jóhann fókusinn fljótt fara þangað.

„Bara mjög vel, ég ætla bara að vera svekktur í kvöld og svo förum við að spá í bikarinn sem er á laugardaginn og Breiðablik.“

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.


Slapp
banner