Liverpool meðal félaga sem vilja Bowen - Juventus hefur áhuga á Jackson - Ederson orðaður við Man Utd
   þri 12. maí 2026 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Öflugir leikmenn skiptu í Þrótt fyrir gluggalok - „Sjáum hvernig þróast með Aron"
Aron Jóhannsson.
Aron Jóhannsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Orri Sigurjónsson var í vetur ráðinn styrktarþjálfari Þróttar.
Orri Sigurjónsson var í vetur ráðinn styrktarþjálfari Þróttar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarnólfur Lárusson.
Bjarnólfur Lárusson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þrír leikmenn sem hafa ekki spilað keppnisfótbolta í vetur skiptu yfir til Þróttar R. undir lok félagaskiptagluggans.

Það voru þeir Aron Jóhannsson (1994), Orri Sigurjónsson (1994) og Bjarnólfur Lárusson (1976).

Aron lagði skóna á hilluna eftir síðasta tímabil með Aftureldingu, Orri Sigurjónsson hætti eftir tímabil með Þór og varð styrktarþjálfari Þróttar og Bjarnólfur er löngu hættur og er í dag formaður Þróttar. Hann var hins vegar mjög öflugur leikmaður á sínum tíma og fékk félagaskipti frá Ármanni undir lok gluggans.

Fótbolti.net ræddi við Sigurvin Ólafsson (Venni), þjálfari Þróttar, um leikmennina.

Menn geta skipt svo sem um félag eins og þeir vilja, og Bjarnólfur Lárusson skipti yfir í Þrótt í vetur - og líklega er hann ekki að fara spila. En er einhver hugmynd að þeir Aron og Orri gætu komið við sögu hjá ykkur í sumar?

„Já varðandi Aron, sjáum hvernig það þróast þegar eða ef hann kemst í gang, hann hefur ekki æft fótbolta í vetur. Það ætti þó ekki að taka langan tíma enda fagmaður þar á ferðinni," segir Venni.

„Við skiptum Orra yfir af því það er bara rökrétt, hann er alltaf á svæðinu og er svo nýlega hættur. En það er hvorki planið hjá mér né honum eins og er að hann taki fram skóna."

„Svipað með Bjarnólf, ég reikna ekki með honum, en hann er auðvitað formaður félagsins svo það er ekki alfarið í mínum höndum,"
segir Venni léttur.

Hvernig er planið með Aron, er vonast til að hann mæti á æfingar á næstunni eða hvað?

„Hann er búinn að mæta á tvær æfingar. Það er ekkert fastmótað plan í gangi, erum bara að meta í sameiningu hvernig þetta rímar við hans plön og daglegt líf, því hann var jú hættur í bolta og kominn í aðra rútínu í lífinu sem við sýnum skilning. Ef það gengur upp og honum líður vel, tengir við hópinn og finnst gaman þá skoðum við næstu skref. Ekkert stress í þessu," segir Venni.

Þróttur er með níu stig eftir fyrstu þrjá leikina í Lengjudeildinni og framundan er bikarleikur á morgun gegn Breiðabliki í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.
Slapp
banner
banner
banner