Man Utd með mörg járn í eldinum - PSG blandar sér í baráttuna um Baleba - Tottenham vill Pulisic
   fös 13. febrúar 2026 20:30
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Dramatískt jöfnunarmark í Reykjanesbæ
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Njarðvík 2 - 2 Grindavík
0-1 Valur Þór Hákonarson ('22)
1-1 Arnar Helgi Magnússon ('24)
2-1 Bragi Karl Bjarkason ('39)
2-2 Rúnar Ingi Eysteinsson ('95)

Njarðvík og Grindavík áttust við í nágrannaslag í Lengjubikarnum í dag þar sem Valur Þór Hákonarson skoraði fyrsta mark leiksins.

Valur Þór, sem gerði 5 mörk í 9 leikjum með Víði Garði í fyrra, skoraði á 22. mínútu en Njarðvíkingar snéru stöðunni við fyrir leikhlé í Nettóhöllinni. Arnar Helgi Magnússon jafnaði skömmu eftir opnunarmarkið, áður en Bragi Karl Bjarkason, sem er nýkominn úr röðum FH, tók forystuna.

Staðan var því 2-1 í hálfleik og héldu Njarðvíkingar forystunni allt þar til seint í uppbótartíma, þegar Rúnar Ingi Eysteinsson, sem skoraði 12 mörk í 22 deildarleikjum með Þrótti Vogi í fyrra, gerði dramatískt jöfnunarmark.

Njarðvík er með fimm stig úr þremur leikjum eftir jafnteflið á meðan þetta er fyrsta stig Grindavíkur.
Athugasemdir
banner