Thuram á óskalistum Arsenal, Liverpool og Man Utd - Ólíklegt að Real reyni við Rodri - Liverpool vill Diomande
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
   fös 13. febrúar 2026 14:23
Kári Snorrason
„Jói er Breti og ég elska Breta“
Jökull gekk í raðir FH eftir síðasta tímabil.
Jökull gekk í raðir FH eftir síðasta tímabil.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Hann er Breti og þið þekkið kallinn, ég elska Breta.“
„Hann er Breti og þið þekkið kallinn, ég elska Breta.“
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Jökull sneri til Íslands frá Englandi sumarið 2024.
Jökull sneri til Íslands frá Englandi sumarið 2024.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Markvörðurinn stæðilegi Jökull Andrésson gekk í raðir FH frá Aftureldingu eftir síðasta tímabil. Hann segir fyrstu mánuðina sem FH-ingur hafa verið krefjandi en jafnframt skemmtilega.

Jökull er uppalinn Mosfellingur en hélt ungur að árum út til Englands og var á mála hjá Reading. Hann dvaldi í Englandi í sjö ár áður en hann hélt aftur heim til Aftureldingar sumarið 2024.

Fótbolti.net ræddi við Jökul um vistaskiptin og fyrstu mánuðina í Hafnarfirði.

Erfiðar æfingar sem skila sér
„Það er búið að vera geggjað, ótrúlega gaman að kynnast öllum strákunum og öllum þeim sem eru í kringum liðið. Það er mikil harka og æfingarnar eru búnar að vera erfiðar. En þannig fílar maður það.“

FH vann 7-0 stórsigur á Lengjudeildarliði Þróttar í síðustu viku.
„Við erum að púsla þessu vel saman á þann hátt sem Jói vill hafa þetta. Það kom vel fram á móti Þrótti. Það var ótrúlega góð orka frá okkur í leiknum, ég held að þetta sé hvernig við ætlum að sýna öðrum liðum hvernig við viljum hafa þetta.“

Elskar Breta
Hvernig líst þér á Jóa Kalla sem þjálfara?
„Hann er geggjaður. Hann er Breti og þið þekkið kallinn, ég elska Breta. Þetta er búið að vera geggjað. Hann er búinn að vera rosalega flottur og hefur hjálpað okkur strákunum. Hann vill gera sitt og við viljum bakka hann upp í að gera það og fara alla leið með þetta.“

Um ólguna í Kaplakrika
Það hefur mikið gengið á í Kaplakrika undanfarnar vikur og jafnvel talað um ólgu innan félagsins. Í því samhengi ber helst að nefna brottför Böðvars Böðvarssonar, en Jökull segir stemninguna í FH engu að síður góða.

„Það er verið að smíða okkur saman. Það er búið að vera mikið í gangi utan vallar en eina sem við getum gert er að vera sterkir saman og gera okkar. Það er ekkert annað sem við getum gert en að halda áfram.“

Ekki í landsliðshópnum
Jökull var ekki í landsliðshóp Arnars Gunnlaugssonar sem mun leika gegn Mexíkó í lok mánaðar.

„Auðvitað langar mig að vera í landsliðshópnum. En nú hef ég meira til að sýna hvað ég get gert. Þetta er spennandi ef eitthvað er, þetta er áskorun. Ég þarf að sýna Arnari hvað kallinn getur gert.“

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan. Jökull var einnig til tals í hlaðvarpinu Kjaftæðið á þriðjudaginn og er hægt að hlusta á þáttinn með því að smella á hlekkinn hér.
Athugasemdir
banner
banner
banner