Man Utd með mörg járn í eldinum - PSG blandar sér í baráttuna um Baleba - Tottenham vill Pulisic
   fös 13. febrúar 2026 22:39
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Tvö rauð og fjögur mörk í Kórnum
Mynd: Keflavík
Ýmir 2 - 2 Víðir
0-1 Nadir Simon Moukhliss ('24)
1-1 Steinn Logi Gunnarsson ('25)
1-2 Nadir Simon Moukhliss ('32)
2-2 Hrannar Þór Eðvarðsson ('93)
Rautt spjald: Reynir Leó Egilsson, Ýmir ('17)
Rautt spjald: Adolf Þór Haraldsson, Víðir ('48)

Ýmir og Víðir Garði áttust við í eina leik kvöldsins í B-deild Lengjubikarsins og úr varð hörkuslagur.

Liðin mættust í kórnum og byrjaði Reynir Leó Egilsson á að fá rautt spjald í liði heimamanna, skömmu áður en Nadir Simon Moukhliss, bráðefnilegur lánsmaður frá Keflavík, tók forystuna.

Steinn Logi Gunnarsson var fljótur að jafna metin fyrir tíu heimamenn en Nadir skoraði aftur svo gestirnir úr Garði leiddu í leikhlé og voru leikmanni fleiri í þokkabót.

Liðsmunurinn entist þó ekki lengi því Adolf Þór Haraldsson fékk að líta rauða spjaldið í upphafi síðari hálfleiks svo aftur var orðið jafnt í liðum - 10 gegn 10.

Garðsmenn héldu forystunni allt þar til í uppbótartíma venjulegs leiktíma þegar Hrannar Þór Eðvarðsson náði að gera jöfnunarmark á 93. mínútu, svo lokatölur urðu 2-2.

Liðin mættust í fyrstu umferð riðlakeppninnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner