Man Utd með mörg járn í eldinum - PSG blandar sér í baráttuna um Baleba - Tottenham vill Pulisic
   fös 13. febrúar 2026 18:36
Ívan Guðjón Baldursson
Pereira gerir eins og hálfs árs samning við Forest
Pereira vonast til að endurtaka leikinn með Nottingham Forest eftir að hafa forðað Úlfunum frá falli í fyrra.
Pereira vonast til að endurtaka leikinn með Nottingham Forest eftir að hafa forðað Úlfunum frá falli í fyrra.
Mynd: EPA
Það er svo gott sem staðfest að Vítor Pereira verður ráðinn sem næsti stjóri Nottingham Forest eftir brottrekstur Sean Dyche á dögunum.

Pereira verður því fjórði þjálfarinn sem stýrir Forest á leiktíðinni eftir Nuno Espírito Santo, Ange Postecoglou og Sean Dyche.

Portúgalinn hefur verið án starfs síðan hann var rekinn frá Wolves í byrjun nóvember. Sá brottrekstur kom aðeins einum og hálfum mánuði eftir að hann hafði skrifað undir nýjan samning við félagið.

Pereira var upphaflega ráðinn til Wolves í desember 2024 og tókst að bjarga liðinu örugglega frá falli á síðustu leiktíð. Hann fékk nýjan samning sem traustsyfirlýsingu eftir slæma byrjun á yfirstandandi tímabili, en var svo rekinn þegar úrslit leikja skánuðu ekki.

Evangelos Marinakis eigandi Forest þekkir vel til Pereira eftir að hafa ráðið hann til starfa hjá Olympiakos í heimalandinu. Pereira gerði frábæra hluti á skömmum tíma með Olympiakos áður en hann var ráðinn til tyrkneska stórveldisins Fenerbahce.

Enskir fjölmiðlar segja að Pereira sé búinn að samþykkja eins og hálfs árs samning við Forest sem gildir út næstu leiktíð.

Forest vill ráða nýjan þjálfara inn fyrir mikilvægan slag gegn Fenerbahce í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar í næstu viku. Þar mun Pereira mæta sínum fyrrum vinnuveitendum strax í fyrsta leik, áður en Forest tekur á móti Englandsmeisturum Liverpool næstu helgi.
Athugasemdir
banner
banner