Þjóðadeildarleikur Króatíu og Englands þann 3. október verður leikinn bak við luktar dyr en UEFA hefur dæmt Króatíu í tveggja leikja áhorfendabann vegna óláta stuðningsmanna.
Refsinguna fær króatíska sambandið eftir vandamál í leik gegn Frakklandi í 8-liða úrslitum Þjóðadeildarinnar á síðasta ári. Hlutum var kastað úr stúkunni, kveikt á flugeldum og óviðeigandi söngvar sungnir.

Áhorfendalaust verður á leik Króatíu og Englands og þá fá króatískir stuðningsmenn ekki að ferðast á útileik gegn Tékklandi.
Króatar eru vanir því að fá áhorfendabönn en Ísland lék gegn þeim á tómum velli í Zagreb fyrir tíu árum. Stuðningsmenn Englands hafa einnig lent í þessu áður en leikur Króatíu og Englands 2018 var einnig áhorfendalaus.
Athugasemdir