Dortmund 4 - 0 Mainz
1-0 Serhou Guirassy ('10 )
2-0 Maximilian Beier ('15 )
3-0 Serhou Guirassy ('42 )
4-0 Dominik Kohr ('84 , sjálfsmark)
1-0 Serhou Guirassy ('10 )
2-0 Maximilian Beier ('15 )
3-0 Serhou Guirassy ('42 )
4-0 Dominik Kohr ('84 , sjálfsmark)
Borussia Dortmund hélt pressunni á FC Bayern í þýsku titilbaráttunni með þægilegum sigri gegn Mainz í kvöld.
Norski vængbakvörðurinn Julian Ryerson átti draumaleik þar sem mögnuð hægri löpp hans skapaði öll mörkin í 4-0 sigri. Öll mörkin nema eitt komu eftir föst leikatriði.
Fyrst skoraði Serhou Guirassy með skalla eftir aukaspyrnu áður en Maximilian Beier tvöfaldaði forystuna með skalla eftir góða fyrirgjöf. Guirassy setti svo þriðja markið með skalla eftir hornspyrnu svo staðan var 3-0 í leikhlé.
Í síðari hálfleik reyndi Mainz að minnka muninn en tókst ekki. Svo fékk Dortmund hornspyrnu á lokakaflanum og aftur tók Ryerson stórhættulega spyrnu sem endaði í netinu eftir viðkomu í varnarmanni.
Dortmund er með 51 stig eftir 22 umferðir, þremur stigum á eftir Bayern sem á leik til góða.
Mainz er í fallbaráttu með 21 stig, tveimur stigum fyrir ofan fallsæti.
Athugasemdir


