Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   fös 13. febrúar 2026 22:03
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Sergio Herrera bjargaði Osasuna
Mynd: EPA
Elche 0 - 0 Osasuna

Elche og Osasuna skildu jöfn í fyrsta leik helgarinnar í efstu deild á Spáni.

Heimamenn í Elche voru talsvert sterkari aðilinn og sköpuðu sér góð færi án þess að koma boltanum í netið.

Þeir voru við algjöra stjórn í fyrri hálfleik en Sergio Herrera markvörður Osasuna bjargaði gestunum nokkrum sinnum meistaralega.

Heimamenn klúðruðu góðum færum en í síðari hálfleik varð leikurinn jafnari þar sem Osasuna skapaði sér líka færi en tókst ekki að stela sigrinum.

Niðurstaðan varð því markalaust jafntefli og er Osasuna fjórum stigum frá evrópusæti.

Elche er þremur stigum frá fallsæti í afar jafnri deild, þar sem einungis fimm stig skilja að á milli liðanna.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 27 22 1 4 72 26 +46 67
2 Real Madrid 27 20 3 4 56 23 +33 63
3 Atletico Madrid 27 16 6 5 46 25 +21 54
4 Villarreal 27 17 3 7 50 32 +18 54
5 Betis 27 11 10 6 42 34 +8 43
6 Celta 27 10 10 7 37 30 +7 40
7 Espanyol 26 10 6 10 33 39 -6 36
8 Real Sociedad 27 9 8 10 40 41 -1 35
9 Getafe 27 10 5 12 23 29 -6 35
10 Athletic 27 10 5 12 30 37 -7 35
11 Osasuna 27 9 7 11 32 32 0 34
12 Valencia 27 8 8 11 30 41 -11 32
13 Vallecano 27 7 10 10 27 33 -6 31
14 Sevilla 27 8 7 12 35 42 -7 31
15 Girona 27 7 10 10 28 43 -15 31
16 Alaves 27 7 6 14 25 37 -12 27
17 Elche 27 5 11 11 35 41 -6 26
18 Mallorca 27 6 7 14 31 44 -13 25
19 Levante 27 5 7 15 29 45 -16 22
20 Oviedo 26 3 8 15 16 43 -27 17
Athugasemdir
banner