Mikel Arteta, stjóri Arsenal, segir ekki sjá eftir því að hafa lánað ungstirnið Ethan Nwaneri á lán til Marseille í janúarglugganum þrátt fyrir meiðslakrísu Arsenal.
Meiðslin virðast herja á Arsenal þessa dagana en liðið er enn í öllum keppnum. Mikel Merino verður frá í nokkra mánuði, Kai Havertz gæti misst af næstu fjórum leikjum og þá hafa þeir Bukayo Saka, Martin Ödegaard, og Max Dowman glímt við meiðsli síðustu vikur.

„Hver hefði getað spáð því að Mikel Merino yrði frá í nokkra mánuði og svo koma meiðslin hjá Havertz ofan í það. Þetta er óheppilegt en við verðum að taka ákvarðanir á staðnum og skilja samhengið þar,“ sagði Arteta og hélt áfram.
„Besta ákvörðunin fyrir leikmanninn og félagið var að hann færi og upplifði annað umhverfi og fengi mínútur og sem myndi gera hann tilbúinn til að koma aftur til okkar.“
Nwaneri skoraði í fyrsta leik sínum hjá Marseille undir stjórn Roberto De Zerbi, en síðan þá hefur gengi franska liðsins dalað. Nú hefur ítalski þjálfarinn stigið frá borði og ekki er búið að tilkynna þjálfara.
Athugasemdir