Það voru nokkrir stórleikir sem fóru fram í efstu deild í Sádi-Arabíu í dag þar sem lærlingar Simone Inzaghi í toppliði Al-Hilal lögðu Al-Ettifaq að velli.
Heimamennirnir Mohamed Kanno og Salem Al-Dawsari skoruðu mörkin í sannfærandi sigri og lagði Malcom fyrra markið upp. Rúben Neves, Sergej Milinkovic-Savic, Karim Benzema og Kalidou Koulibaly voru einnig meðal byrjunarliðsmanna ásamt markverðinum Yassine Bounou.
Í liði Al-Ettifaq tókst Georginio Wijnaldum og félögum ekki að halda aftur að stórveldi Al-Hilal, sem er enn taplaust og með 53 stig eftir 21 umferð. Al-Ettifaq er í sjöunda sæti með 35 stig.
Youssef En-Nesyri skoraði þá fyrra markið í naumum sigri ríkjandi meistara Al-Ittihad gegn Al-Fayha. Danilo Pereira, Fabinho, Houssem Aouar og Predrag Rajkovic voru meðal byrjunarliðsmanna í meistaraliðinu sem er í sjötta sæti með 37 stig.
Að lokum áttu Ivan Toney og Riyad Mahrez mark og stoðsendingu á haus í stórsigri Al-Ahli gegn Al-Shabab, en Yannick Carrasco skoraði tvennu fyrir heimamenn.
Franck Kessié og Enzo Millot komust einnig á blað en lokatölur urðu 2-5 fyrir Al-Ahli sem situr í öðru sæti, þremur stigum á eftir Al-Hilal.
Al-Hilal 2 - 0 Al-Ettifaq
1-0 Mohamed Kanno ('13)
2-0 Salem Al-Dawsari ('31)
Al-Ittihad 2 - 1 Al-Fayha
1-0 Youssef En-Nesyri ('35)
1-1 Fashion Sakala ('55)
2-1 Hassan Kadesh ('83)
Al-Shabab 2 - 5 Al-Ahli
0-1 Rayan Hamidou ('6)
0-2 Franck Kessie ('20)
0-3 Riyad Mahrez ('25)
1-3 Yannick Carrasco ('33)
1-4 Enzo Millot ('34)
2-4 Yannick Carrasco ('44, víti)
2-5 Ivan Toney ('83, víti)
Athugasemdir



