Hinn bráðefnilegi Arnar Bjarki Gunnleifsson er búinn að skrifa undir sinn fyrsta samning við meistaraflokk Breiðabliks, en hann er aðeins 15 ára gamall.
Arnar Bjarki hefur verið að gera frábæra hluti með unglingalandsliðum Íslands þar sem hann er kominn með 6 mörk í 9 leikjum með U16 og U17.
Arnar hefur æft með meistaraflokki Breiðabliks undanfarna mánuði og mun ferðast með liðinu í æfingaferð til Spánar eftir helgi.
„Við óskum Arnari Bjarka til hamingju með samninginn og hlökkum jafnframt til að sjá hann á vellinum í sumar," segir meðal annars í tilkynningu frá Breiðabliki.
Arnar er sonur Gunnleifs Vignis Gunnleifssonar, sem var aðalmarkvörður meistaraflokks Breiðabliks í sjö ár og spilaði 26 A-landsleiki á ferlinum. Gunnleifur á annan son hjá Breiðabliki, Gunnleif Orra, sem fæddur er 2008.
Athugasemdir


