Frimpong orðaður við Liverpool - City reynir við Reijnders - Man Utd ætlar ekki að losa sig við Amorim
   þri 13. maí 2025 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ísland í dag - Þór á Selfossi í Mjólkurbikarnum
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
16-liða úrslit Mjólkurbikarsins fara af stað í kvöld með einum leik.

Það er Lengjudeildarslagur á Selfossi þar sem Þórsarar koma í heimsókn.

Selfyssingar vann ÍH 5-2 og Hauka 4-0 á leið sinni í 16-liða úrslitin á meðan Þór lagði Magna örugglega 7-0 og ÍR 3-1.

Selfyssingar eru nýliðar í Lengjudeildinni en liðið vann Grindavík í fyrstu umferð heima en tapaði svo gegn Fylki úti. Þór gerði jafntefli gegn HK heima en fór svo í góða ferð suður og lagði Leikni.

þriðjudagur 13. maí

Mjólkurbikar karla
18:00 Selfoss-Þór (JÁVERK-völlurinn)
Athugasemdir
banner