Í morgun var tilkynnt að Amanda Andradóttir væri orðin leikmaður Vals. Landsliðskonan, sem er nítján ára gömul, kemur frá Kristianstad í Svíþjóð.
Hún lék með yngri flokkum Vals en fór til Danmerkur áður en hún náði að leika fyrsta leik með meistaraflokki og frá Danmörku hélt hún til Noregs og svo Svíþjóðar.
Hún lék með yngri flokkum Vals en fór til Danmerkur áður en hún náði að leika fyrsta leik með meistaraflokki og frá Danmörku hélt hún til Noregs og svo Svíþjóðar.
„Ég held að þetta sé það besta fyrir mig akkúrat núna. Það eru mjög spennandi leikir framundan hjá Val, bæði í deildinni og síðan eru leikir um að komast í Meistaradeildina. Ég er búin að vera spila lítið úti."
„Maður er auðvitað alltaf svekktur þegar maður spilar lítið. Það er erfitt fyrir mig að segja (ástæðuna fyrir því), ég mæti bara alltaf á æfingar og reyni að vera betri og sýna að ég eigi skilið að spila."
„Já, eiginlega (var Valur fyrsti kostur), ef ég ætlaði að koma heim þá ætlaði ég alltaf í Val. Ég var í yngri flokkunum í Val og leið alltaf mjög vel þar. Ég talaði bara við Val á Íslandi, ég hefði alveg getað verið áfram úti en mig langaði að koma í Val núna."
„Mér líst vel á að vera komin til Íslands, hef náttúrulega ekki spilað leik í meistaraflokki á Íslandi, þannig það verður gaman að prófa það. Ég held þetta sé öðruvísi en í Svíþjóð, deildin úti er náttúrulega aðeins sterkari en deildin hér er mjög jöfn og ég er bara mjög spennt að byrja spila."
„Ég talaði um þetta við fjölskylduna og svona, það er aðallega þau (sem hjálpuðu við þessa ákvörðun). Ég þekki einhverjar sem eru að spila með Val og eru hér í landsliðinu. Síðan æfði ég smá með meistaraflokknum áður en ég fór út."
Amanda var til viðtals fyrir leikinn gegn Finnlandi sem fram fer á Laugardalsvelli annað kvöld. Leikurinn hefst klukkan 18:00 á Laugardalsvelli.
„Leikurinn leggst mjög vel í mig, verður hörkuleikur, Finnland er með gott lið og fínn æfingaleikur fyrir leikina í haust."
Amanda sagði að landsliðsþjálfarinn væri búinn að tilkynna liðið. „Maður vonast alltaf til að spila," sagði hún en gaf ekkert uppi hvort hún myndi byrja.
„Fyrst og fremst skiptir frammistaðan máli, en við viljum náttúrulega alltaf vinna," sagði Amanda að lokum.
Athugasemdir






















