Chelsea og Man Utd berjast um miðjumann - Palace vill leikmann Bayern og Brennan Johnson
banner
   lau 13. desember 2025 15:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Tekið vel á móti Salah sem kom inn á fyrir meiddan Gomez
Mynd: EPA
Mohamed Salah er kominn inn á hjá Liverpool gegn Brighton á Anfield.

Salah byrjaði á bekknum í dag í fjórða leiknum af síðustu fimm en hann var ekki í leikmannahópnum gegn Inter eftir frægt viðtal sem hann fór í eftir leik gegn Leeds um síðustu helgi.

Arne Slot og Salah funduðu í vikunni og virðast hafa náð sáttum. Hann kom inn á fyrir Joe Gomez sem meiddist eftir 25 mínútna leik. Hann hefur verið nokkuð líflegur og skapað fín færi fyrir liðsfélaga sína.

Gomez lagði upp eina mark leiksins til þessa á Hugo Ekitike en markið kom eftir aðeins 46 sekúndna leik.


Athugasemdir
banner
banner
banner