Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
Davíð Smári: Það lítur ekki vel út fyrir Jóhann
Gunnar Heiðar: Helvíti langur tími fyrir fótboltaþjálfara
Jóhann Birnir svekktur: Mér fannst þetta ekki vera aukaspyrna
Fannst ekki ganga nógu vel að koma mönnum niður á jörðina eftir leikinn gegn FH
Brynjar Björn: Stór og sterkur og það er eitthvað sem vantaði
Venni: Æðislegt að hann taki þátt í þessu með okkur
Hallgrímur Mar: Loksins kominn í eitthvað stand
Hallgrímur Jónasar: Það býr meira í KA liðinu
Jói Kalli: Stuðningsmenn FH hafa allan rétt á sinni skoðun
Aron Sig: Væri högg fyrir hvert einasta lið
Talar um verðskuldaðan sigur: Hægt að vinna fótboltaleiki á fleiri vegu
Rúnar: Dálítið leiðinlegt að vera svona smámunasamur
Hemmi alsæll eftir dísætan sigur - „Ótrúlega fallegt að sjá þetta inni“
Óskar Hrafn: Partíin voru annars staðar
Ólafur Ingi neitar að tjá sig um mögulegt víti Blika
Haraldur Freyr: Flestir komast upp með mikið á móti honum
Fluttur til Keflavíkur og heldur sér uppteknum með fótboltanum
Jökull: Það eina sem ég hef áhyggjur af
Linta: Hötum að tapa en sýndum samt karakter
Viktor Jóns: Erfitt að verja svona
banner
   þri 14. apríl 2026 22:16
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Laugardalsvelli
Cecilía: Ég er vön þessu stundum úti
Eimskip
Cecilía í leiknum.
Cecilía í leiknum.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
„Þetta eru ótrúlega mikilvæg þrjú stig. Kannski ekki fallegasti fótboltaleikurinn en við sigldum þessu heim," sagði markvörðurinn Cecilía Rán Rúnarsdóttir eftir 1-0 sigur gegn Úkraínu í undankeppni HM í kvöld.

Lestu um leikinn: Ísland 1 -  0 Úkraína

Það var ekki mikið hjá Cecilíu, sem spilar með Inter á Ítalíu, að gera í leiknum, en hún varði einu sinni mjög vel í fyrri hálfleik þegar sóknarmaður Úkraínu slapp í gegn.

„Ég er vön þessu stundum úti að það er ekkert að gera en svo kemur bara eitt færi og ég verð að vera tilbúin í það sem markvörður," sagði Cecilía.

„Það kallar á sterkan haus. Kannski kemur eitt skot á 90 mínútu og þá verð ég að vera tilbúin. Þetta var þannig leikur."

Um færið í fyrri hálfleiknum sagði hún: „Þetta gerðist mjög hratt. Ég droppaði niður og reyndi að lesa hana."

Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner