Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   mið 15. apríl 2026 10:53
Elvar Geir Magnússon
Arteta: Enginn ótti, bara eldmóður
Mikel Arteta, stjóri Arsenal.
Mikel Arteta, stjóri Arsenal.
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu lýkur í kvöld. Arsenal tekur á móti Sporting á Emirates-leikvanginum en enska liðið er með eins marks forystu eftir sigurmark Kai Havertz í Portúgal.

„Enginn ótti, bara eldmóður. Það vil ég sjá frá leikmönnum, frá stuðningsmönnum og frá mér sjálfum. Það er apríl og það eru ótrúlegir möguleikar fyrir framan okkur. Horfumst í augu við það og leggum allt í sölurnar," sagði Mikel Arteta, stjóri Arsenal, á fréttamannafundi fyrir leikinn.

Arsenal hefur verið að gefa eftir að undanförnu og tapað þremur af síðustu fjórum leikjum. Liðið er þó enn á toppi ensku úrvalsdeildarinnar og getur tryggt sér í undanúrslit Meistaradeildarinnar í kvöld.

„Það sem við erum að reyna að afreka er erfitt, það er áskorun, það geta komið hindranir á tímum. Við erum að reyna að afreka eitthvað í Meistaradeildinni sem félagið hefur aldrei náð í sögunni, á 140 árum," sagði Arteta og vitnaði í að Arsenal gæti komist í undanúrslit annað tímabilið í röð.

Leikur Arsenal og Sporting hefst klukkan 19:00.
Slapp