Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
   mið 15. apríl 2026 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Lengjubikarinn: Álftanes með fullt hús stiga inn í undanúrslitin
Mynd: Álftanes
Álftanes 3 - 0 RB
1-0 Hörður Kárason ('4 )
2-0 Magnús Ársælsson ('20 )
3-0 Markús Pálmi Pálmason ('72 )

Álftnesingar fara fullir sjálfstrausts inn í undanúrslit C-deildar Lengjubikarsins en liðið vann alla leiki sína í riðlakeppninni.

Í gær vann liðið öruggan 3-0 sigur á RB á HTH-vellinum á Álftanesi þar sem þeir Hörður Kárason, Magnús Ársælsson og Markús Pálmi Pálmason skoruðu mörkin.

Liðið vann alla fjóra leiki sína og endaði með markatöluna 20-3, ásamt því að tryggja sig inn í undanúrslitin.

Álftanes mætir KFR á laugardag og mun sigurvegarinn annað hvort mæta Álafoss eða KFR í úrslitum.
Lengjubikar karla - C-deild, riðill 2
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Álftanes 4 4 0 0 20 - 3 +17 12
2.    SR 4 2 2 0 14 - 15 -1 6
3.    Léttir 4 2 2 0 9 - 14 -5 6
4.    Skallagrímur 4 1 3 0 6 - 11 -5 3
5.    RB 4 1 3 0 8 - 14 -6 3
Slapp
banner
banner