Hinn bráðefnilegi Leó Hrafn Elmarsson hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við Þrótt R. en hann er fæddur 2010 og er einn efnilegasti leikmaður félagsins.
Leó er fjölhæfur leikmaður sem spilar ýmist sem miðvörður, bakvörður eða miðjumaður. Þrátt fyrir að vera í þriðja flokki leikur hann mestmegnis með öðrum flokki og er lykilmaður þar, auk þess að hafa verið í kringum æfingarnar hjá meistaraflokki í sumar.
Hann á sex leiki að baki fyrir U15 og U16 landsliðin og var fyrirliði U16 í leik á æfingamóti í Finnlandi í lok september.
„Leó Hrafn Elmarsson er einn af fjölmörgum feykilega efnilegum drengjum sem leika með yngri flokkum Þróttar og yngri landsliðum. Stefna félagsins um mikilvægi uppbyggingarstarfs er alveg skýr og hluti hennar sá að þeir bestu eigi greiða leið inn í meistaraflokk félagsins á hverjum tíma. Ef allt gengur eftir munu Þróttarar sjá Leó Hrafn á vellinum með aðalliði félagsins innan skamms," sagði Kristján Kristjánsson formaður fótboltadeildar Þróttar meðal annars.
Athugasemdir

