City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   mán 16. mars 2026 22:58
Brynjar Ingi Erluson
Ánægður með mistök dómarans - „Mun alltaf taka því“
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Rob Edwards, stjóri Wolves, var stoltur af endurkomu sinna manna í 2-2 jafnteflinu gegn Brentford í ensku úrvalsdeildinni í kvöld, en viðurkennir að liðið hafi haft heppnina með sér í fyrra markinu sem það skoraði.

Botnliðið lenti tveimur mörkum undir í fyrri hálfleik en kom til baka undir lok hálfleiksins með marki Adam Armstrong sem þótti heldur umdeilt.

Jose Sá, markvörður Wolves, tók þá boltann upp eftir sendingu til baka og í kjölfarið hófst uppspilið sem bjó til markið. Sá mátti ekki taka boltann og hefði dómarinn átt að dæma óbeina aukaspyrnu á Wolves.

„Ég er ótrúlega stoltur. Mér fannst við ekki alveg verðskulda að lenda 2-0 undir, en það gerðist og verð ég að hrósa Brentford þar. Við gerðum nokkur mistök og var refsað fyrir það, en mér fannst við spila mjög vel.“

„Við sýndum trú og gæði á vellinum, en mikill baráttuandi hélt okkur gangandi og svo kom tími í leiknum þar sem mér fannst við geta unnið hann. Það heppnaðist því miður ekki en ég er samt mjög stoltur af frammistöðunni.“

„Ég var bara að sjá þetta í öðru viðtali og já það lítur út fyrir það. Hann hefur haldið að það hafi verið snerting þarna, en ef við komumst upp með þetta þá mun ég alltaf taka því. Auðvitað átti samt margt eftir að gerast til þess að skora markið, en kannski græddum við á þessu,“
sagði Edwards.

Wolves er áfram á botninum, tólf stigum frá öruggu sæti, en Edwards segir að hann og liðið muni halda áfram að gefa allt fram að lokum tímabilsins.

„Leikmennirnir og við öll skuldum fótboltafélaginu, okkur sjálfum og stuðningsmönnunum að berjast fram að síðasta leik. Það er nákvæmlega það sem við munum gera. Við töluðum mikið um hvað varamenn geta haft mikil áhrif og þeir hafa sýnt það síðustu vikur, hvort sem það er að skora mörk eða hafa áhrif á leikinn og það gerðist aftur í kvöld. Allir strákarnir sem komu inn á voru áhrifamiklir. Allur hópurinn tekur þátt og er ég mjög ánægður fyrir hönd Tolu,“ sagði Edwards.

Úlfarnir eru komnir í gott páskafrí. Næsti leikur liðsins er ekki fyrr en gegn West Ham þann 10. apríl og því 25 dagar í næsta leik.

„Við vitum að það verður stór leikur og í raun eru þetta allt mjög stórir leikir. Við fáum smá frí og síðan verður þetta blanda af æfingum og æfingaleikjum til þess að vera rétt undirbúnir. Við höfum aldrei fengið 25 daga frí á tímabilinu áður þannig þetta verður nýtt fyrir okkur,“ sagði Edwards í lokin.
Athugasemdir
banner