City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   mán 16. mars 2026 21:56
Brynjar Ingi Erluson
England: Brentford kastaði frá sér tveggja marka forystu gegn botnliðinu
Tolu Arokodare kom með frábæra innkomu af bekknum
Tolu Arokodare kom með frábæra innkomu af bekknum
Mynd: EPA
Igor Thiago skoraði nítjánda deildarmark sitt á tímabilinu
Igor Thiago skoraði nítjánda deildarmark sitt á tímabilinu
Mynd: EPA
Brentford 2 - 2 Wolves
1-0 Michael Kayode ('22 )
2-0 Igor Thiago ('37 )
2-1 Adam Armstrong ('44 )
2-2 Tolu Arokodare ('78 )

Brentford kastaði frá sér tveggja marka forystu í 2-2 jafntefli liðsins gegn botnliði Wolves í 30. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á Community-leikvanginum í Lundúnum í kvöld.

Ítalski bakvörðurinn Michael Kayode skoraði sitt fyrsta deildarmark fyrir Brentford með hörkuskalla eftir fyrirgjöf Keane Lewis-Potter á 22. mínútu.

Sá hefur lengi beðið eftir fyrsta markinu, en hann kom til Brentford fyrir rúmu ári.

Fimmtán mínútum síðar fagnaði brasilíski framherjinn Igor Thiago því að vera kallaður inn í brasilíska landsliðið í fyrsta sinn með því að gera nítjánda deildarmark sitt.

Caoimhin Kelleher, markvörður Brentford, átti stórkostlegan bolta fram völlinn og á Dango Ouattara sem átti enn betri móttöku, komst inn fyrir og lagði boltann til hliðar á Thiago sem skoraði og allt útlit fyrir að Brentford væri að fara ná í þægileg þrjú stig.

Adam Armstrong kom Úlfunum hins vegar aftur inn í leikinn eftir frábæra sókn. Hann færði sig út vinstra megin áður en hann fékk boltann, lék á varnarmann og klíndi boltanum efst í hægra hornið. Frábært mark hjá Armstrong.

Á 74. mínútu gerðu Úlfarnir breytingu sem átti eftir að gera gæfumuninn fyrir þá er Tolu Arokodare kom inn fyrir Jean-Ricner Bellegarde.

Fjórum mínútum síðar jafnaði Arokodare metin með skalla eftir skemmtilega fyrirgjöf Joao Gomes á fjærstöng. Aðeins nokkrum mínútum síðar var Arokodare nálægt því að koma Úlfunum yfir en skalli hans hafnaði í þverslá.

Alvöru innkoma hjá Nígeríumanninum sem var óheppinn að sækja ekki öll stigin fyrir gestina.

Bæði lið reyndu að sækja sigurmark undir lokin en höfðu ekki erindi sem erfiði og lokatölur 2-2. Brentford er áfram án sigurs á heimavelli síðan 7. janúar og Úlfarnir halda áfram að kroppa stig í von um að halda sæti sínu í deildinni.

Brentford er áfram í 7. sæti með 45 stig og Úlfarnir á botninum með 17 stig, tólf stigum frá öruggu sæti.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 31 21 7 3 61 22 +39 70
2 Man City 30 18 7 5 60 28 +32 61
3 Man Utd 30 15 9 6 54 41 +13 54
4 Aston Villa 30 15 6 9 40 37 +3 51
5 Liverpool 30 14 7 9 49 40 +9 49
6 Chelsea 30 13 9 8 53 35 +18 48
7 Brentford 30 13 6 11 46 42 +4 45
8 Everton 30 12 7 11 34 35 -1 43
9 Newcastle 30 12 6 12 43 43 0 42
10 Bournemouth 30 9 14 7 44 46 -2 41
11 Fulham 30 12 5 13 40 43 -3 41
12 Brighton 30 10 10 10 39 36 +3 40
13 Sunderland 30 10 10 10 30 35 -5 40
14 Crystal Palace 30 10 9 11 33 35 -2 39
15 Leeds 30 7 11 12 37 48 -11 32
16 Tottenham 30 7 9 14 40 47 -7 30
17 Nott. Forest 30 7 8 15 28 43 -15 29
18 West Ham 30 7 8 15 36 55 -19 29
19 Burnley 30 4 8 18 32 58 -26 20
20 Wolves 31 3 8 20 24 54 -30 17
Athugasemdir
banner