Loki Kristjánsson (2011) hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við Val.
Loki er efnilegur leikmaður en hann var í fyrsta sinn í hóp hjá Val þegar hann va rá bekknum í leik liðsins gegn Þór í fyrstu umferð Bestu deildarinnar um síðustu helgi.
Loki er efnilegur leikmaður en hann var í fyrsta sinn í hóp hjá Val þegar hann va rá bekknum í leik liðsins gegn Þór í fyrstu umferð Bestu deildarinnar um síðustu helgi.
„Loki er fjölhæfur leikmaður með sterkan vinstri fót og hefur verið á meðal fremstu leikmanna í yngri flokkum Vals. Hæfileikar hans og vinnusemi hafa ekki farið fram hjá neinum og fékk hann nýverið tækifæri til að æfa með danska félaginu FC Midtjylland," segir í tilkynningu Vals.
„Við erum afar ánægð með að Loki sjái framtíð sína hjá okkur í Val. Hann er mjög spennandi leikmaður með frábæran vinstri fót og getur leyst margar stöður á vellinum. Reynslan hjá FC Midtjylland hefur greinilega haft góð áhrif á þroska hans og hungur til að ná árangri. Að vera hluti af hópnum gegn Þór um helgina er viðurkenning á hans vinnusemi og elju. Hann hefur alla burði til að ná langt og við hlökkum til að fylgjast með næstu skrefum Loka hjá félaginu," sagði Gareth Owen, tæknilegur yfirmaður knattspyrnumála hjá Val.


