,,Leikurinn var ekki nógu góður í dag. Við vorum heppnir að fá ekki mark á okkur í fyrri hálfleik þar sem þeir voru betra liðið," sagði Milan Stefán Jankovic þjálfari Grindvíkinga eftir 2-0 sigur á KV í kvöld.
,,Það er fínt að fá þrjú stig en leikurinn var ekki nógu góður. Þetta var lélegasti leikur okkar á tímabilinu."
Grindvíkingar eru með 22 stig í sjöunda sætinu eftir að hafa unnið síðustu þrjá leiki sína.
,,Við ætlum að vera á meðal fimm bestu liðanna. Það eru bara þrjú stig í 3. sætið og við ætlum að fara til Reykjavíkur og ná í þrjú stig á móti Þrótti."
,,Við tökum ein leik í einu en við reynum að vinna rest ef það er hægt."
Hér ða ofan má sjá viðtalið í heil dsinni.






















