Fyrsta skotmark De Zerbi - Man Utd fylgist með miðverði Benfica - Kofane til Arsenal - Hvað verður um Kounde og Dumfries?
Ian Jeffs: Veit ekki hverjar geta mætt á morgun
Guðni Eiríks: Sagði að ef hann myndi ekki taka ákvörðunina þá myndi ég gera það fyrir hann
Álitið - Hver verður efnilegastur
Álitið - Hverjir verða meistarar og hver verður bestur?
Óskar Hrafn hefur ekki tíma fyrir gæðastjórann
Aron Einar: Það hefur aldrei vantað upp á hjá honum
Arnar vonsvikinn: Rosalega mikill klaufagangur
Gylfi: Jákvætt að þetta gerist ekki í undankeppni
Ísak Bergmann: Langt síðan við höfum farið ósigraðir úr glugga
Jón Dagur: Verður eins og Covid leikur
Ellefu dagar í Bestu - Gæðastjórinn útskýrir xF
Steini: Hún er á mun betri stað en fyrir hálfu ári
Davíð Örvar: Við gefum öllum liðum leik
Maggi: Hann átti frábæran leik í dag
41 árs Birkir Már: Vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum
Valdimar Þór: Skil dómarann að gefa mér gult
Daniel Badu: Þessi leikur sýndi okkur að við eigum enn eitthvað í land
Sölvi Geir um óvænta innkomu Sveins Margeirs: Þetta er okkar leikmaður og við pössum upp á þá
„Þurfum að læra sem lið að loka þessum leikjum"
Mikael Egill svekktur: Hann hló og sagði ekki séns
   fim 17. mars 2016 22:55
Ívan Guðjón Baldursson
Milos: Alltaf gott að vinna KR
Milos segir að það sé alltaf gott að vinna KR, hvort sem það er í æfinga- eða keppnisleik.
Milos segir að það sé alltaf gott að vinna KR, hvort sem það er í æfinga- eða keppnisleik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Milos Milojevic, þjálfari Víkings R., var ánægður með góðan sigur sinna manna á KR í Lengjubikarnum fyrr í kvöld.

Milos vildi þó ekki gera of mikið úr sigrinum enda aðeins um æfingaleik í æfingamóti að ræða.

„Ég er sáttur með sigurinn og spilamennskuna en það er ennþá Lengjubikarsbragur á þessari spilamennsku, leikurinn var aðeins að æsast upp að óþörfu en þegar maður vinnur KR 3-1 þá er maður ánægður hvort sem það er æfingaleikur eða ekki," sagði Milos.

„Það er mjög gott að vera með sterka sóknarlínu en ekki gleyma að ég er líka með Andra og Stebba Páls það er það sem ég sagði við strákana, þeir sem komu inn voru gríðarlega öflugir og þannig vil ég hafa það, samkeppni fyrir hverja einustu stöðu. Við þurfum að hafa breidd ef við ætlum að vera í toppbaráttu í sumar."

Víkingar eru búnir að vinna fjóra leiki af fjórum í Lengjubikarnum og er Milos mjög ánægður með það og segir að það hjálpi sjálfstraustinu.

„Þessir sigrar eru ekkert að telja þegar það kemur að alvöru keppninni en að sjálfsögðu hjálpar þetta sjálfstraustinu. Það er komið smá sjálfstraust í liðið en við erum ekkert að missa okkur, það verður enginn meistari í apríl."

Milos er búinn að vera í útlöndum á þjálfaranámskeiði og fer aftur út í páskafríinu.
Slapp
banner