Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
   þri 17. mars 2026 22:18
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Æfingaleikur: Keflavík sigraði spænskt akademíulið
Stefan Ljubicic var á skotskónum í dag.
Stefan Ljubicic var á skotskónum í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Keflvíkingar, sem verða í Bestu deildinni í sumar, unnu 2-0 sigur í æfingaleik í dag.

Keflavík er í æfingaferð á Tenerife og vann sigur á heimamönnum í CD Tenerife Cantera. Cantera, sem er varalið CD Tenerife, spilar í fjórðu efstu deild á Spáni. Í færslu spænska félagsins er sagt að liðið hafi spilað vináttuleik í dag skipað liði leikmanna úr unglingakademíunni.

Keflavík spilaði á tveimur jöfnum liðum í leiknum og voru það þeir Stefan Alexander Ljubicic og Muhamed Alghoul sem skoruðu mörkin.

Keflavík spilar í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í byrjun apríl og mætir svo KR á útivelli í fyrstu umferð Bestu deildarinnar 12. apríl.




Athugasemdir
banner
banner