Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
   þri 17. mars 2026 17:30
Elvar Geir Magnússon
FIFA mun ekki leyfa Íran að færa leikina til Mexíkó
Íranskir stuðningsmenn.
Íranskir stuðningsmenn.
Mynd: EPA
FIFA mun ekki verða að ósk Írans um að færa leiki liðsins á HM í sumar til Mexíkó. Íran vill ekki spila í Bandaríkjunum.

Samvæmt frétt Guardian þá myndu skapast mörg erfið vandamál við að flytja leiki íranska liðsins, miðar hafa verið seldir, útsendingaráætlanir hafa verið samþykktir og ýmsir samningar kláraðir.

Ólíklegt er að FIFA taki lokaákvörðun varðandi þátttöku Írans þar til á ráðstefnu í Vancouver þann 30. apríl. FIFA vill að Íran taki þátt á mótinu.

Vafi er um þátttöku Írans eftir að Bandaríkin gerðu, ásamt Ísrael, loftárásir á landið. Átök ríkja í Mið-Austurlöndum og Donald Trump forseti Bandaríkjanna hefur sagst ekki geta tryggt öryggi leikmanna íranska landsliðsins á HM.

Keppnin verður haldin í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada. Íran á að vera í G-riðli með Belgíu, Egyptalandi og Nýja Sjálandi. Liðið á samkvæmt dagskrá að spila tvo leiki í Los Angeles og einn í Seattle. HM fer af stað þann 11. júní.
Athugasemdir
banner