„Mér var sagt þegar ég kom hingað að þetta félag væri öðruvísi og að stuðningsmenn styðji þjálfara lengi.“
Liverpool og Galatasary eigast við í síðari viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar á Anfield annað kvöld. Tyrkirnir leiða með einu marki eftir fyrri leikinn.
Arne Slot mætti á blaðamannafund fyrir skömmu og segir hann liðið standa frammi fyrir erfiðu verkefni.
Arne Slot mætti á blaðamannafund fyrir skömmu og segir hann liðið standa frammi fyrir erfiðu verkefni.
„Þetta er erfitt þar sem við höfum mætt þeim tvisvar og tapað báðum leikjum. Það jákvæða er að þetta er fyrsti heimaleikurinn okkar gegn þeim og við fáum stuðning frá okkar stuðningsmönnum, sem hafa alltaf staðið með liðinu,“ sagði Slot.
Slot var spurður út í baul stuðningsmanna eftir jafnteflið gegn Tottenham sem beindust að honum og liðinu.
„Það er aldrei gott þegar stuðningsmenn eru pirraðir, enda gerist það yfirleitt ekki þegar liðið vinnur. Mér var sagt þegar ég kom hingað að þetta félag væri öðruvísi og að stuðningsmenn styðji þjálfara lengi.
Ef það er rétt að þeir séu að verða óþolinmóðir þá hlýt ég að hafa gert margt rangt og það er ekki góð tilfinning. En ég veit líka hvernig fótboltinn virkar, sigur getur breytt miklu og það er það sem við stefnum að.“
Slot var ósammála gagnrýni Jamie Carragher á vinnuframlagi liðsins gegn Tottenham en Liverpool hljóp níu kílómetrum minna í leiknum.
Tvísýnt með Gomez og styttist í Isak
Joe Gomez er tæpur fyrir leikinn eftir að hafa spilað meiddur um helgina, en Slot segir ákvörðunina tekna á morgun. „Hann er í smá vandræðum og við metum stöðuna á morgun,“ sagði sá hollenski.
Slot segir Ibrahima Konaté vera búinn að jafna sig og vonandi klárann í að spila allan leikinn.
Þá staðfesti Slot að Alexander Isak verði ekki með í næstu tveimur leikjum. Hann æfði einn í dag. „Hann er ekki klár og verður ekki klár á laugardaginn. Það er erfitt að setja tímaramma á hann en hann færist nær endurkomu,“ bætti Slot við.
Athugasemdir



