Enska úrvalsdeildin lagði í gær rúmlega 10 milljóna punda sekt á Chelsea vegna leynilegra greiðslna til umboðsmanna og þriðja aðila í tengslum við leikmannakaup. Greiðslurnar námu alls yfir 47 milljónum punda og áttu sér stað á árunum 2011 til 2018.
Félagið fékk einnig eins árs skilorðsbundið félagaskiptabann sem þýðir að félagið sleppur með skrekkinn ef það gerist ekki brotlegt á næstu tveimur árum.
Dan Roan, blaðamaður á BBC, veltir því fyrir sér hvort að Chelsea sé að sleppa fullvel með skrekkinn í grein sem hann skrifaði á vef breska ríkisútvarpsins í dag.

Málið snýr að vísvitandi brotum og leynd í tengslum við félagaskipti. Greiðslurnar tengdust kaupum á lykilleikmönnum á borð við Eden Hazard, Willian og David Luiz, sem áttu stóran þátt í velgengni Chelsea á árunum.
Brotin áttu sér stað þegar rússneski auðjöfurinn Roman Abramovich átti félagið. Úrvalsdeildin tók tillit til þess að núverandi eigendur félagsins tilkynntu brotin sjálfir og sýndu fullt samstarf og því var refsingin mildari.
Þó er hægt að færa rök fyrir því að refsingin sé væg miðað við umfang málsins og þann ávinning sem félagið hafði af brotunum. Chelsea vann ensku úrvalsdeildina tvisvar, Meistaradeildina, Evrópudeildina, FA-bikarinn tvisvar og deildarbikarinn á meðan brotin áttu sér stað.
Í greininni er bent á að önnur félög, eins og Everton og Nottingham Forest, fengu stigafrádrátt fyrir minni brot. Þá vekur málið spurningar um eftirlit deildarinnar, þar sem brotin hefðu mögulega aldrei komið upp nema vegna tilkynningar frá félaginu.
Málið hefur jafnframt áhrif á umræðu um önnur stór mál, þar á meðal málið gegn Manchester City vegna 115 meintra brota, sem bíður enn niðurstöðu.
Athugasemdir