Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
banner
   fös 17. apríl 2026 12:00
Elvar Geir Magnússon
Howe: Það er eldur í mér
Eddie Howe, stjóri Newcastle.
Eddie Howe, stjóri Newcastle.
Mynd: EPA
Eddie Howe, stjóri Newcastle, segir að það sé „öflugur eldur í sér“ og að hann telji að hann sé svo sannarlega rétti maðurinn fyrir starfið.

Það hefur verið bras á Newcastle síðustu vikur og liðið sigið niður í fjórtánda sæti deildarinnar. Umræða hefur verið um framtíð Howe hjá félaginu.

„Ég vil þjóna félaginu og gera það sem er best fyrir það. Það hefur alltaf verið mitt markmið. Ef ég tel að best fyrir félagið sé að ég fari þá verður það ekki vandamál. En ég tel mig í dag vera rétta manninn til að taka liðið áfram," segir Howe.

„Ég mun berjast af meiri krafti en ég hef gert nokkrum sinnum áður. Þetta hefur verið erfiður kafli. Í mínu starfi viltu vinna fótboltaleiki. Á svona tíma þá verður þú að vera gagnrýninn á sjálfan þig og nota hvöss orð en á sama tíma að passa upp á að sjálfstraustið skaddist ekki."

Newcastle mætir Bournemouth á morgun.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 37 25 7 5 69 26 +43 82
2 Man City 37 23 9 5 76 33 +43 78
3 Man Utd 37 19 11 7 66 50 +16 68
4 Aston Villa 37 18 8 11 54 48 +6 62
5 Liverpool 37 17 8 12 62 52 +10 59
6 Bournemouth 37 13 17 7 57 53 +4 56
7 Brighton 37 14 11 12 52 43 +9 53
8 Chelsea 37 14 10 13 57 50 +7 52
9 Brentford 37 14 10 13 54 51 +3 52
10 Sunderland 37 13 12 12 40 47 -7 51
11 Newcastle 37 14 7 16 53 53 0 49
12 Everton 37 13 10 14 47 49 -2 49
13 Fulham 37 14 7 16 45 51 -6 49
14 Leeds 37 11 14 12 49 53 -4 47
15 Crystal Palace 37 11 12 14 40 49 -9 45
16 Nott. Forest 37 11 10 16 47 50 -3 43
17 Tottenham 37 9 11 17 47 57 -10 38
18 West Ham 37 9 9 19 43 65 -22 36
19 Burnley 37 4 9 24 37 74 -37 21
20 Wolves 37 3 10 24 26 67 -41 19
Slapp
banner