Liverpool hefur áhuga á Senesi, Gordon og Ndiaye - City fylgist með Read - Mourinho orðaður við Newcastle
   fös 17. apríl 2026 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lengjudeildin áfram á Livey út 2027
Lengjudeildin
Mynd: ÍTF x Livey
Mynd: Livey
ÍTF (Íslenskur Toppfótbolti) og Livey hafa undirritað samstarfssamning um sýningu á Lengjudeildum karla og kvenna næstu tvö tímabilin. Lengjudeildirnar eru þær næstefstu á Íslandi, deildin fyrir neðan Bestu deildina.

Komandi tímabil verður annað árið sem Lengjudeildin verður á Livey Sport.

,mVið erum gríðarlega spenntir fyrir því að halda áfram að lyfta upp íslenskum fótbolta og sjáum þar mikil tækifæri. Ekki eingöngu hér á landi heldur einnig erlendis," segir Guðjón Sveinsson, framkvæmdastjóri Livey.

„Mikil tækniþróun undanfarinna ára á sviði sjálfvirkrar framleiðslu gefur okkur tækifæri til að sýna frá mun fleiri leikjum en áður hefur verið mögulegt. Í sumar munum við, í samstarfi við Spiideo, OZ og ÍTF, halda áfram að bæta útsendingagæði deildarinnar með ýmsum nýjungum. Sem dæmi má nefna að í samstarfi við Lengjuna og Netgíró verðum við með markaþætti fyrir Lengjudeild karla og kvenna."

Birgir Jóhannsson, framkvæmdastjóri ÍTF segist hæstánægður með samninginn.

„Þetta er frábær samningur fyrir íslenskan fótbolta, við erum gríðarlega ánægðir með samstarfið við Livey og finnst þeir hafa gert Lengjudeildunum hátt undir höfði. Í ár er svo aukið í umfjöllunina með nýjum markaþætta fyrir báðar deildir. Við erum spenntir fyrir komandi sumri og hlökkum til þess að sjá alla leiki í beinni."


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner