Ísland vann mikilvægan sigur á Úkraínu á dögunum og þarf að eiga sinn allra besta leik til að ná í úrslit gegn Englendingum sem unnu heimsmeistara Spánverja á dögunum.
Ísland og England mætast í undankeppni á Laugardalsvelli á morgun klukkan 16:30.
Sarina Wiegman, þjálfari Evrópumeistara Englands, sat fyrir svörum á fréttamannafundi í Laugardalnum en hún hefur áður komið til Íslands.

„Ég hef komið hingað þrívegis, tvisvar sem leikmaður en það var á síðustu öld. Það er alltaf erfitt að mæta Íslandi. Þetta er virkilega fallegt land og við erum virkilega heppin með veðrið," segir Wiegman.
„Þegar ég kom hingað sem aðstoðarþjálfari Hollands þá var mikill vindur, mikill snjór og mjög erfitt að leika gegn þeim."
„Ég býst við mjög öguðu íslensku liði með samheldni og kraft. Þær eru mjög góðar í föstum leikatriðum og innköstum. Þetta verður öðruvísi áskorun en gegn Spáni en við þurfum að gera þann sigur enn verðmætari með því að ná í góð úrslit á morgun."