Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
   mið 18. mars 2026 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Arnar Skúli aðstoðar á Króknum
Mynd: Tindastóll
Arnar Skúli Atlason hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari Tindastóls fyrir komandi tímabil.

Arnar þekkir vel til á Sauðárkróki en hann er uppalinn hjá Tindastóli. Hann kemur til með að hjálpa liðinu í 3. deild í sumar.

Tilkynning Tindastóls
Arnar Skúli Atlason hefur skrifað undir sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla fyrir komandi sumar.

Arnar þekkir vel til hjá Tindastóli þar sem hann spilaði áður með félaginu og kemur því með góða innsýn í starfið og umhverfið á Króknum.

Við bjóðum Arnar hjartanlega velkominn aftur í Tindastól og hlökkum til samstarfsins í sumar!

Áfram Tindastóll
Athugasemdir
banner