Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
banner
   mið 18. mars 2026 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fulham og PSV ná samkomulagi um Pepi
Mynd: EPA
Fulham hefur náð samkomulagi við PSV um kaup á bandaríska landsliðsmanninum Ricardo Pepi. Fabrizio Romano greinir frá.

Romano segir að félögin hafi náð munnlegu samkomulagi og kaupverðið sé rúmlega 30 milljónir punda.

Pepi er 23 ára sóknarmaður og hefur verið sjóðandi heitur í hollensku deildinni. Hann hefur skorað 10 mörk í 19 deildarleikjum en PSV er með 16 stiga forystu á toppnum.

Fulham reyndi að fá hann undir lok félagaskiptagluggans í janúar en PSV hafnaði tilboðinu þar sem félagið gat ekki fundið arftaka hans í tæka tíð.
Athugasemdir
banner