Philippe Coutinho hefur ákveðið að rifta samningi sínum við Vasco de Gama í Brasilíu í kjölfarið á því að stuðningsmenn liðsins bauluðu á hann.
Hinn 33 ára gamli Coutinho gekk alfarið í raðir uppeldisfélags síns í fyrra eftir langan feril í Evrópu þar sem hann spilaði með Inter, Liverpool, Barcelona, Bayern München og Aston Villa.
Hinn 33 ára gamli Coutinho gekk alfarið í raðir uppeldisfélags síns í fyrra eftir langan feril í Evrópu þar sem hann spilaði með Inter, Liverpool, Barcelona, Bayern München og Aston Villa.
Barcelona borgaði 145 milljónir punda fyrir Coutinho árið 2018 og er hann einn af dýrustu fótboltamönnum sögunnar en hann náði sér aldrei á strik í Katalóníu. Hann átti frábæran tíma með Liverpool en hefur ekki náð miklum hæðum eftir það, allavega ekki miðað við hversu mikið var búist við af honum.
Núna er kafla hans hjá Vasco de Gama lokið eftir að stuðningsmennirnir bauluðu á hann fyrir slaka frammistöðu.
„Sannleikurinn er sá að ég er mjög andlega þreyttur," skrifaði Coutinho á Instagram eftir að það varð staðfest að hann myndi yfirgefa félagið.
Athugasemdir




