Freyr Alexandersson, þjálfari Brann í Noregi, var ekkert að svekkja sig of mikið á 1-0 tapinu gegn Bologna í fyrri leik liðanna í umspili Evrópudeildarinnar í kvöld og segist spenntur fyrir seinni leiknum sem er spilaður í Bologna í næstu viku.
Brann hélt í boltann stærstan hluta leiksins en eina markið gerði Santiago Castro snemma leiks sem tryggði Bologna sigurinn.
Freyr var ánægður með framlag sinna manna og að einvíginu sé langt í frá lokið.
„Við vorum að spila við lið úr Seríu A á velli þar sem það er nánast ómögulegt að tengja saman þrjár sendingar saman. Mér fannst við vera með stjórn stærstan hluta leiksins og reyndum allt til að búa eitthvað til, en það er oft svo mjótt á mununum. Það er samt bara hálfleikur í einvíginu,“ sagði Freyr við Viaplay.
Seinni leikurinn fer fram eftir viku á heimavelli Bologna.
„Fótbolti er leikur þar sem allt getur gerst. Hlutirnir verða mjög áhugaverðir ef við náum að skora fyrsta markið í Bologna, en það verður líka áhugavert að sjá hvernig þeir munu nálgast leikinn,“ sagði hann enn fremur.
Athugasemdir


