Rashford, Senesi, Delap, Sancho, Rogers, Richarlison, Goretzka og fleiri góðir koma við sögu í slúðri dagsins
   fim 19. febrúar 2026 19:50
Brynjar Ingi Erluson
Evrópudeildin: Pereira byrjar með látum hjá Forest - Naumt tap hjá Brann
Lærisveinar Freysa töpuðu fyrir Bologna
Lærisveinar Freysa töpuðu fyrir Bologna
Mynd: EPA
Vitor Pereira byrjar vel með Forest
Vitor Pereira byrjar vel með Forest
Mynd: EPA
Íslendingalið Brann tapaði naumlega fyrir Bologna, 1-0, í fyrri leik liðanna í umspili Evrópudeildarinnar í Bergen í kvöld. Vitor Pereira byrjar þá frábærlega með Nottingham Forest sem vann 3-0 útisigur á Fenerbahce í Tyrklandi.

Santiago Castro skoraði sigurmark Bologna á 9. mínútu leiksins með föstu skoti neðst í hægra hornið.

Brann fékk færi til að skora í leiknum. Ulrik Mathiesen átti skalla sem Lukasz Skorupski þurfti að hafa sig allan í til að verja og þá varð hann annað skot frá Noah Holm.

Jón Dagur Þorsteinsson og Kristall Máni Ingason voru að byrja fyrsta keppnisleikinn með Brann og komu ágætlega frá honum þrátt fyrir tap, en Kristall fór af velli á 70. mínútu og Jón Dagur tæpum tíu mínútum síðar.

Eggert Aron Guðmundsson og Sævar Atli Magnússon voru ekki með vegna meiðsla.

Naumt 1-0 tap gegn Bologna en liðin munu eigast aftur við í næstu viku á heimavelli Bologna. Freyr Alexandersson er þjálfari Brann.

Vitor Pereira var ráðinn nýr stjóri Nottingham Forest á dögunum sem gerir hann að fjórða stjóra tímabilsins hjá félaginu, en hann gat ekki beðið um betri byrjun.

Hans menn unnu sannfærandi 3-0 sigur á Fenerbahce. Brasilíski varnarmaðurinn Murillo fann sinn innri Lucio er hann keyrði fram völlinn og þrumaði boltanum fyrir utan teig og neðst í hægra hornið.

Lucio, sem spilaði einnig sem miðvörður á ferli sínum, var þekktur fyrir þessi skógarhlaup sín með liðum á borð við Inter, Bayer Leverkusen, Bayern München og brasilíska landsliðinu.

Igor Jesus gerði annað markið með skalla eftir hornspyrnu undir lok hálfleiksins og gerði Morgan Gibbs-White út um leikinn snemma í þeim síðari með laglegri afgreiðslu.

Öruggt hjá Forest og draumabyrjun hjá Pereira sem fer með gott veganesti inn í seinni leikinn.

Genk vann 3-1 útisigur á Dinamo Zagreb í Króatíu þar sem Zakari El Ouahdi skoraði tvennu og þá vann Celta Vigo erfiðan 2-1 útisigur á PAOK í Grikklandi.

SK Brann 0 - 1 Bologna
0-1 Santiago Castro ('9 )

Dinamo Zagreb 1 - 3 Genk
0-1 Bryan Heynen ('15 )
0-2 Zakaria El Ouahdi ('21 )
1-2 Dion Beljo ('44 )
1-3 Zakaria El Ouahdi ('90 )

Fenerbahce 0 - 3 Nott. Forest
0-1 Murillo ('21 )
0-2 Igor Jesus ('43 )
0-3 Morgan Gibbs-White ('50 )

PAOK 1 - 2 Celta
0-1 Iago Aspas ('34 )
0-2 Williot Swedberg ('43 )
1-2 Alexander Jeremejeff ('77 )
Athugasemdir
banner
banner